Vörueigandi innheimtuþjónustu og innlána
Við leitum að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi í starf vörueiganda (e. Digital Product Owner) á Viðskiptabankasvið Íslandsbanka. Viðskiptabankinn þjónar litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem eru hryggjarstykkið í íslensku efnahagslífi og standa undir kraftmikilli verðmætasköpun í öllum atvinnugreinum.
Helstu verkefni:
- Þróun og mótun innheimtuþjónustu og greiðslumiðlunar sem er hluti af stafrænni vegferð bankans
 - Ábyrgð á kerfum og ferlum sem tengjast innheimtuþjónustu og innlánum fyrirtækja
 - Stýra og forgangsraða verkefnum vöruteymis
 - Þátttaka í stefnumótun og þróun nýrra vara
 - Samskipti við aðrar einingar bankans og viðskiptavini
 
Hæfniskröfur:
- Framúrskarandi samskiptafærni og sjálfstæði í vinnubrögðum
 - Mikill eldmóður, metnaður og áhugi
 - Menntun sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði, viðskiptafræði eða tölvunarfræði
 - Þekking á fjármálaumhverfi og hugbúnaðarþróun æskileg
 - Reynsla af því að leiða teymi og verkefni
 
Frekari upplýsingar:
Frekari upplýsingar veita Marteinn Már Guðgeirsson forstöðumaður, marteinn.mar.gudgeirsson@islandsbanki.is, og Guðlaugur Örn Hauksson ráðningarstjóri, gudlaugur.orn.hauksson@islandsbanki.is.
Hjá Íslandsbanka starfa um 750 manns sem hafa ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini með fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á að skapa virði til framtíðar með traustum rekstri og framúrskarandi þjónustu.
Sækja um starf
Frekari upplýsingar veita Marteinn Már Guðgeirsson forstöðumaður, marteinn.mar.gudgeirsson@islandsbanki.is, og Guðlaugur Örn Hauksson ráðningarstjóri, gudlaugur.orn.hauksson@islandsbanki.is.