Viðmótshönnuður

Jökulá 30. Sep 2021 Fullt starf

Jökulá hönnunarstofa leitar að lausnamiðuðum viðmótshönnuði sem getur unnið sjálfstætt sem og í teymi.

Viðmótshönnuður hjá Jökulá vinnur náið með öðrum innan teymisins ásamt því að vinna náið með utanaðkomandi hugbúnaðarfyrirtækjum jafnt og innri deildum stærri fyrirtækja.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vefhönnun, viðmótshönnun og hönnun á öðrum stafrænum afurðum
  • Uppsetning á frumgerðum (e. prototype)
  • Gæðaeftirlit (e. QA) á forrituðum afurðum
  • Samskipti við viðskiptavini
  • Þátttaka í vinnustofum og fundum

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Lágmark 2-4 ára reynsla á sviði hönnunar. Reynsla af viðmótshönnun er ekki krafa en nauðsynlegt að viðkomandi hafi getu og vilja til þess að hanna í því umhverfi
  • Góð kunnátta á forritið Figma
  • Reynsla af teymisvinnu
  • Mikill kostur ef að viðkomandi hafi þekkingu á hreyfimyndahönnun og þekki tól eins og After effects, Principle eða Protopie, en ekki skilyrði
  • Mikill kostur ef að viðkomandi hafi þekkingu á Adobe forritum eins og Photoshop eða Illustrator, en ekki skilyrði
  • Hjá Jökulá trúum við því að menntun sé ekki það sem gerir manneskju góða í sínu fagi heldur viljinn til þess að læra nýja hluti hvort sem það er í gegnum skóla, internetið eða af næsta manni. Því leggjum við enga sérstaka áherslu á að fólk sé með viðeigandi menntun
  • Hvað þurfum við?

  • Ferilskrá.
  • Portfólíu af fyrri verkum hvort sem um er að ræða skjal, vefsíðu eða hlekk á fyrri verk. Við leggjum sérstaka áherslu á að fólk sé með uppfærð verkefni og leggi áherslu á það sem það vill sýna okkur, þar sem við skoðum þetta fyrst og fremst.
  • Við leggjum enga sérstaka áherslu á að fólk sendi okkur kynningarbréf, en þau eru velkomin samt sem áður.
  • Hver erum við?

    Jökulá er 10 manna hönnunarstofa sem var stofnuð árið 2015 og hefur vaxið og dafnað síðan. Við erum með starfsmenn á nánast öllum sviðum hönnunar s.s. grafískan hönnuð, hreyfimyndahönnuð, sérfræðinga í notendaupplifun, textagerðarfólk og markaðsfræðinga. Við leggjum mikla áherslu á notendamiðaða hönnun.

    Við bjóðum alla velkomna til Jökulá, hver sem þú ert og hvaðan sem þú kemur. Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að sækja um.

    Umsóknarfrestur til og með 10 október


    Sækja um starf
    Upplýsingar fyrir umsækjendur

    Allar umsóknir með ferilskrá og portfólíu sendast á storf@jokula.is