Viðmótsgóður leiðbeinandi/kennari

Tækniskólinn ehf / Vefskólinn 9. May 2016 Hlutastarf

Ert þú viðmótsgóður viðmótsforritari?

Vefskólinn leitar að sérfræðingi í viðmótsforritun. Fullt starf eða hlutastarf leiðbeinanda/kennara er í boði.

Frábært tækifæri til þess að deila reynslu og þekkingu með áhugasömum nemendum í skemmtilegu og skapandi vinnuumhverfi.

Starfssvið

  • Kennsla í HTML, CSS og JavaScript
  • Skipulag á kennslu í samstarfi við Tækniskólann
  • Skipulagning á námsefni og yfirferð á verkefnum

Hæfniskröfur

  • Víðtæk þekking í viðmótsforritun
  • Framúrskarandi færni í að búa til viðmót með HTML og CSS
  • Mjög gott vald á JavaScript
  • Nám í tölvunarfræði, vefforritun eða öðru sambærilegu námi er kostur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhuga og metnaður að þróa framúrskarandi nám í vefþróun
  • Gott auga fyrir útliti og viðmóti
  • Þekking á eftirfarandi er mikill kostur: AngularJS, React, MySQL, PHP, Node.js, SASS, Git

Vefskólinn er hluti af Tækniskólanum og eru starfsstöðvar skólans við Háteigsveg. Nám við skólann hófst haustið 2015. Vefskólinn býður upp á sérhæfða námsleið í vefþróun með áherslu á viðmótsforritun, að loknu stúdentsprófi. Námsleiðin er sérsniðin að þörfum atvinnulífsins og hefur fjöldi fyrirtækja í vefiðnaði tekið þátt í því að þróa námið og kenna nemendum Vefskólans. Rík áhersla á fjölbreytt verkefni í nánu samstarfi við atvinnulífið.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Vinsamlegast sendið umsókn á jao@tskoli.is. Fullum trúnaði heitið. Nánari upplýsingar um störfin veitir Jónatan Arnar Örlygsson í síma 8203236 eða með tölvupósti á jao@tskoli.is

Við hlökkum til að heyra frá þér :)