Viðmótsforritari

Premis ehf 28. Sep 2018 Fullt starf

Starfið felst í viðmótsforritun fyrir vef- og hugbúnaðarlausnir fyrir fjöldann allan af viðskiptavinum Premis. Um er að ræða vinnu við viðhald, breytingar og endurbætur á síðum og kerfum sem og forritun á nýjum lausnum.

Hæfniskröfur

  • Mjög gott vald á HTML, CSS og Javascript.
  • Þekking á kerfum eins (t.d. Webpack eða Gulp)
  • Þekking á preprocessor kerfum eins og Less, Sass eða Stylus
  • Þekking á Vue, React, Angular eða sambærilegu.
  • Geta unnið með jQuery og hreint Javascript
  • Reynsla í notkun og uppsetningu CMS-kerfa
  • Geta unnið með REST þjónustur
  • Gott augu og nákvæmni þegar kemur að uppsetningu á útliti fyrir mismunandi tæki.
  • Áhugi á góðu skipulagi kóða
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og færni til að vinna í teymi

Annað sem væri gott að hafa þekkingu á

  • Forritun í Node.js.
  • Sérþekking á einhverju sviði viðmótsforritunar s.s. kortum, Canvas, Animation eða öðru.
  • Uppsetning á REST þjónustum.
  • Vinna með gagnagrunna (SQL, MSSQL, MongoDB osfr).
  • App forritun og/eða forritun í React Native eða sambærilegu
  • Kunnátta í öðrum forritunarmálum.

Premis er 50+ manna fyrirtæki sem sinnir hýsingu og rekstri, kerfisþjónustu og vef- og hugbúnaðargerð.

Nánari upplýsingar veitir Díana Dögg Víglundsdóttir, deildarstjóri vef- og hugbúnaðargerðar í netfagnið diana@premis.is


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsóknarfrestur er til 15. október 2018