Verkefnastjóri í stafrænni markaðssetningu

Nordic Visitor 15. Nov 2018 Fullt starf

Nordic Visitor leitar að reyndum og ástríðufullum verkefnastjóra í stafrænni markaðssetningu. Við leitum að hæfileikaríkum einstaklingi með skothelda ferilskrá, með reynslu í verkefnastýringu og umsjón herferða í stafrænni markaðssetningu.

Á markaðssviði Nordic Visitor starfa 12 manns, í tveimur löndum og ber sviðið ábyrgð á stafrænni markaðssetningu og uppbyggingu vefsvæða fyrirtækisins.

Um er að ræða einstakt tækifæri fyrir réttan aðila til að starfa hjá einu stærsta ferðaþjónustufyrirtæki Íslands, sem rekur eina stærstu netverslun landsins.

Starfs- og ábyrgðarsvið

  • Verkefnastýring í stafrænni markaðssetningu
  • Umsjón með markaðssetningu í gegnum samfélagsmiðla
  • Umsjón með “retargeting” herferðum
  • Greining á markaðsherferðum og notendahegðun
  • Notendaprófanir og A/B prófanir
  • Þátttaka í eftirfarandi:
    • Keypt leit
    • Leitarvélabestun og efnismarkaðssetning
    • Markpóstar
    • Vefþróun
    • Greining nýrra tækifæra og leiða til markaðssetningar
    • Önnur tilfallandi verkefni á markaðssviði

Hæfniskröfur

  • Reynsla af stafrænni markaðssetningu er skilyrði, í alþjóðaumhverfi er mikill kostur
  • Reynsla af verkefnastjórnun
  • Lágmark 3 ára starfsreynsla í sambærilegu starf
  • Reynsla af markaðssetningu á samfélagsmiðlum og leitarvélabestun
  • Þekking á Google Ads, Google Analytics og Facebook Business Manager
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
  • Góð enskukunnátta er skilyrði
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

Við bjóðum uppá

  • Góða vinnuaðstöðu á aðalskrifstofu okkar í Reykjavík
  • Lifandi og fjölskylduvænan vinnustað
  • Fjölbreytt, metnaðarfull og krefjandi verkefni
  • Tækifæri til að vaxa í starfi í alþjóðaumhverfi
  • Metnaðarfulla stefnu í mannauðsmálum

Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hjalti Már Einarsson, forstöðumaður Markaðssviðs, hjalti@nordicvisitor.com.

Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi berist í síðasta lagi sunnudaginn 2. desember 2018 merkt „Verkefnastjóri í stafrænni markaðssetningu“ á netfangið career@nordicvisitor.com. Fullum trúnaði er heitið.