Verkefnastjóri | Hugbúnaðarþróun hjá Norda

Norda ehf. 21. Jan 2023 Fullt starf

🚀 Sköpum framúrskarandi lausnir saman 🚀

Norda óskar eftir góðum og áreiðanlegum verkefnastjóra með tæknilega innsýn til að leiða fjölbreytt verkefni þvert á fyrirtækið. Um er að ræða spennandi starf innan um fjölbreyttan hóp einstaklinga með ólíka þekkingu og reynslu.

Við hjá Norda erum stolt af okkar fólki og saman höfum við smíðað margar ólíkar hugbúnaðalausnir fyrir fyrirtæki og stofnanir. Við leggjum mikla áherslu á að bjóða upp á hlýtt og notalegt vinnuumhverfi og að styðja við starfsfólk með tækifærum til að vaxa í starfi.

Við bjóðum upp á greiningu, hönnun, þróun og ráðgjöf á hugbúnaðarlausnum. Í okkar samfélagi eyðum við stórum hluta af tímanum okkar í vinnunni, þess vegna leggjum við hjá Norda okkur fram við að skapa heilbrigt starfsumhverfi þar sem öllum líður vel.  Meira um okkur hér.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Yfirsýn, forgangsröðun og skipulagning fjölbreyttra verkefna
  • Samskipti við hagsmunaaðila
  • Eftirfylgni og utanumhald
  • Gæða- og skilastjórnun
  • Aðkoma að gerð þarfagreininga og verkáætlana
  • Aðkoma að greiningu á umfangi, samningum og skýrslugerð
  • Leiða teymi samkvæmt Scrum aðferðafræðinni.

Hæfnikröfur:

  • Löngun til að þróa framsækinn hugbúnað
  • Tillitssemi, frumkvæði og þolinmæði
  • Ástríða fyrir mannlegum samskiptum
  • Drifkraftur til að ná árangri, gera breytingar og leiða framfarir
  • Metnaður til að læra eitthvað nýtt
  • Reynsla í að leiða hugbúnaðarverkefni frá upphafi til enda
  • Lausnamiðuð hugsun og fagleg vinnubrögð

Eftirfarandi menntun og reynsla er kostur en ekki krafa:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Þekking á Agile aðferðafræði
  • Reynsla af greiningarvinnu
  • Reynsla af gerð þarfagreininga og verkáætlana
  • Góð enskukunnátta í rituðu og töluðu máli

Það sem við höfum upp á að bjóða:

  • Fjölbreytt verkefni í nútímalegum hugbúnaði
  • Fjölskylduvænt fyrirtæki með sveigjanlegri viðveru
  • Tækifæri til að vinna í teymi með skemmtilegu og hæfileikaríku fólki
  • Umhverfi þar sem allir hafa rödd
  • Tölvubúnaður að eigin vali
  • Virk skemmtinefnd sem skipuleggur smærri og stærri viðburði mjög reglulega
  • Niðurgreiddur hádegismatur og fullur ísskápur af snarli
  • Net- og símastyrkur
  • Samkeppnishæf laun
  • … og fleira.

Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur
  • Umsóknarfrestur er til og með 17. febrúar 2023.
  • Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á atvinna@norda.is
  • Upplýsingar veitir Telma Hrönn Númadóttir, verkefnastjóri hjá Norda í síma 583 0303 eða á telma@norda.is.
  • Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim öllum svarað.