Verkefnastjóri á veflausnasviði

Advania, veflausnir 12. Feb 2021 Fullt starf

Starfssvið

Verkefnastjóri sér um skipulagningu og stjórnun verkefna viðskiptavina veflausna, miðlar stöðu og framvindu þeirra, ásamt því að annast gerð greininga og verkáætlana. Verkefnastjórar hjá veflausnum sinna samskiptum og þjónustu við stóran hóp viðskiptavina ásamt því að leita nýrra tækifæra á sviði app- og veflausna.

Við hjá veflausnum erum í stöðugri þróun og viljum gjarnan fá aðila til okkar sem er reiðubúinn að leggjast á árarnar með okkur.

Veflausnir

Hjá veflausnum Advania starfa um 40 manns og er því um að ræða eina af stærstu hugbúnaðardeildum landsins. Hópurinn hefur þróað ótal margar stórar sem smáar lausnir fyrir breiðan hóp ánægðra viðskiptavina.

Hæfnikröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi og/eða
  • Reynsla af verkefnastjórnun í hugbúnaðarverkefnum
  • Frumkvæði og drifkraftur
  • Lausnamiðuð hugsun og fagleg vinnubrögð
  • Færni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
  • Að auki er kostur ef umsækjendur búa yfir:

  • Reynslu af Scrum eða Kanban verkefnastýringu
  • Meistaragráðu í verkefnastjórnun (MPM) eða IPMA / Scrum master vottun
  • Aðrar upplýsingar

    Advania er alhliða þjónustufyrirtæki í upplýsingatækni og svara lausnir fyrirtækisins þörfum tugþúsunda viðskiptavina í atvinnulífinu. Advania er fjölskylduvænn vinnustaður og er vinnutíminn sveigjanlegur. Virk jafnréttisstefna og samgöngustefna er hjá fyrirtækinu og boðið er upp á góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi í höfuðstöðvum fyrirtækisins við Guðrúnartún. Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressum vinnufélögum, þá finnurðu það hjá okkur. Við viljum nefnilega vera besti vinnustaður landsins! Gildi Advania eru ástríða, snerpa og hæfni.


    Sækja um starf
    Upplýsingar fyrir umsækjendur

    Ferli umsóknar

  • Tekið á móti umsóknum til 21. febrúar 2021á https://jobs.50skills.com/advania/is/6388
  • Yfirferð umsókna
  • Boðað í fyrstu viðtöl
  • Boðað í seinni viðtöl
  • Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á
  • Öflun umsagna / meðmæla
  • Ákvörðun um ráðningu
  • Öllum umsóknum svarað
  • Starfsmenn mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

    Nánari upplýsingar veita:

  • Hrefna Arnardóttir, deildarstjóri sérlausna og ráðgjafar, hrefna.arnardottir@advania.is/ s. 440 9000
  • Daði Rúnar Pétursson, deildarstjóri viðmótslausna og hönnunar, dadi.runar.petursson@advania.is/ s. 440 9000.