Verkefnastjóri

Andes og Prógramm 26. Mar 2024 Fullt starf

Andes og Prógramm leita að öflugum aðila í fjölbreytt starf verkefnastjóra. Viðkomandi þarf að hafa reynslu úr upplýsingatækniumhverfi, geta unnið sjálfstætt og komið verkefnum á leiðarenda.

Andes og Prógramm eru systurfélög sem saman mynda eitt af öflugri hugbúnaðarhúsum landsins. Við trúum því að við getum aukið skilvirkni með sérfræðiþekkingu og vali á réttum verkfærum fyrir hvert og eitt verkefni. Við erum leiðandi í stafrænni umbreytingu og sérsvið okkar eru skýjalausnir, sjálfvirkni, innviðir og flóknari hugbúnaðarlausnir. Vinnustaðurinn er frábær vettvangur fyrir þá sem vilja þróast áfram á sviði upplýsingatækni og taka þátt í krefjandi, skapandi og skemmtilegum verkefnum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón og stýring á margvíslegum verkefnum
  • Ábyrgð á þarfagreiningu, skipulagi og framvindu verkefna
  • Forgangsröðun og virðismat verkefna, áætlanagerð og kostnaðareftirlit
  • Aðstoða hugbúnaðarteymi með skipulagningu og samvinnu
  • Skilningur á þörfum viðskiptavina og áskorana þeirra

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði, verkefnastjórnun eða sambærilegt
  • Reynsla úr upplýsingatækniumhverfi
  • Áhugi og þekking á hugbúnaðarþróun og viðskiptastýringu
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og mikil þjónustulund
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli

Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

– Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl 2024

– Öllum umsóknum þarf að fylgja ferilskrá

– Farið er með umsóknir sem trúnaðarmál

– Öllum umsóknum verður svarað