Verkefnastjóri

11. May 2022 Fullt starf

Við leitum að framúrskarandi einstakling til að leiða fjölbreytt verkefni á viðskiptalausnasviði Já.

Ef þú hefur brennandi áhuga á stafrænum lausnum og hæfni til að leiða fjölbreyttan hóp fólks í átt að markmiðum, þá erum við pottþétt að leita að þér!

Helstu verkefni

  • Verkefnastýring þvert á fyrirtækið
  • Greining á nýjum viðskiptatækifærum, núverandi markaði og vörum
  • Markaðssetning á núverandi og nýjum lausnum
  • Innri markaðssetning og upplýsingagjöf
  • Daglegur rekstur á vörum
  • Hæfniskröfur

  • Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
  • A.m.k. 3 ára reynsla af verkefnastýringu
  • Reynsla af vinnu við uppbyggingu og innleiðingu á stafrænum lausnum
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og í að leiða teymi
  • Sjálfstæð, vönduð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð greiningarhæfni
  • Gott vald á íslensku og reynsla af textagerð
  • Reynsla af umsjón markaðsherferða, leitarvélabestun og Asana er kostur
  • Já á og rekur Já.is, 1818 og Gallup.

    Meginverkefni viðskiptalausnasviðs eru vöru- og viðskiptaþróun, sala, markaðsmál og verkefnastjórnun.


    Sækja um starf
    Upplýsingar fyrir umsækjendur

    Við hvetjum fólk á öllum aldri og af öllum kynjum að sækja um. Umsóknarfrestur er til 30. maí nk. og verða allar umsóknir og fyrirspurnir meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.

    Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný Laxdal, sviðsstjóri viðskiptalausnasviðs, dagny@ja.is / 522 3200.

    Umsóknarfrestur er til 30. maí nk. og verða allar umsóknir og fyrirspurnir meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.