Vélahönnuður

VAKI 14. Feb 2023 Fullt starf

Vaki fiskeldiskerfi ehf. óska eftir að ráða vélahönnuð.

Vélahönnuður tilheyrir þróunarteymi Vaka og vinnur að þróun og hönnun á hátæknivélbúnaði fyrir vöruflóru Vaka/MSD. Meðal verkefna vélahönnuðar eru þarfagreining og skipulagning verkefna, útfærsla og hönnun vélbúnaðar og eftirfylgni með verkefnum.

Menntunar- og hæfniskröfur:

• Menntun á sviði vélaverkfræði, véltæknifræði eða sambærilegt nám

• Reynsla í notkun þrívíddar hönnunarforrita t.d. Inventor eða SolidWorks er kostur

• Vinna vel í teymi og geta tekið virkan þátt í vinnu í alþjóðlegu vinnuumhverfi

• Góð enskukunnátta

Vaki fiskeldiskerfi ehf. var stofnað árið 1986 og hefur frá fyrstu tíð verið leiðandi fyrirtæki í hönnun og þróun á hátæknibúnaði fyrir fiskeldi um allan heim. Helstu vörur Vaka eru fiskiteljarar byggðir á tölvusjón sem telja fisk á öllum stigum í eldinu ásamt fiskiflokkurum og fiskidælum. Annað sérsvið Vaka er myndavélabúnaður til að stærðarmæla fisk í sjókvíum, telja laxalús og fylgjast með velferð og vexti fiskanna. Árið 2019 keypti MSD Animal Health allt hlutafé í Vaka og nú sem hluti af MSD eru uppi spennandi áform um stækkun og eflingu fyrirtækisins. Aukin áhersla verður lögð á vöruþróun og þjónustu í nánu samstarfi við viðskiptavini og munu nýjar lausnir Vaka stuðla að framþróun fiskeldis um allan heim.

Frekari upplýsingar á vaki.is


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Nánari upplýsingar veita Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is, og Þórdís Sif Arnarsdóttir, thordis@hagvangur.is.