Vefstjóri HR

Háskólinn í Reykjavík 25. Oct 2017 Fullt starf

Háskólinn í Reykjavík leitar að dugmiklum og drífandi einstaklingi í starf vefstjóra. Vefstjóri vinnur náið með starfsmönnum markaðs- og samskiptasviðs, öðrum stoðsviðum og akademískum deildum háskólans, að stöðugri framþróun vefs HR. Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á vefmálum og metnað til að gera vef Háskólans í Reykjavík enn betri.

STARFSSVIÐ:
– Ábyrgð og umsjón með vef HR, þar með talið þróun, viðhald, verkefnastjórnun, framsetning á efni, notendaviðmót og uppbygging vefsins
– Samskipti við deildir og svið vegna vefmála
– Þátttaka í uppbyggingu og þróun á innri vef HR í samvinnu við mannauðssvið háskólans
– Umsjón með notkun HR á samfélagsmiðlum
– Þátttaka í ytri og innri markaðssetningu HR

HÆFNISKRÖFUR:
– Reynsla af vefstjórn og verkefnastjórnun

– Reynsla af notkun vefumsjónarkerfa og þróun notendaviðmóts
– Færni í framsetningu efnis fyrir vefi

– Reynsla af notkun samfélagsmiðla og samspili þeirra við vef 

– Færni í leitarvélabestun (SEO), Google analytics, html og CSS
– Ritfærni á íslensku- og ensku
– Færni í mannlegum samskiptum
– Reynsla af notkun Siteimprove er kostur
– Reynsla af myndvinnslu er kostur

Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Sigurðsson forstöðumaður markaðs- og samskiptasviðs, (eirikursig@ru.is) og Sigríður Elín Guðlaugsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs, (sigridureg@ru.is). Umsóknum skal skilað á vef Háskólans í Reykjavík, radningar.hr.is. Umsóknarfrestur er til og með 6. nóvember 2017.

Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði fyrir einstaklinga og samfélag með siðgæði, sjálfbærni og ábyrgð að leiðarljósi. Akademískar deildir háskólans eru fjórar: Lagadeild, tölvunarfræðideild, tækni- og verkfræðideild og viðskiptadeild. Kennsla og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík mótast af sterkum tengslum við atvinnulíf og samfélag. Lögð er áhersla á þverfagleika, alþjóðlegt umhverfi, nýsköpun og góða þjónustu. Nemendur Háskólans í Reykjavík eru um 3700 í fjórum deildum og starfa um 240 fastir starfsmenn við háskólann auk fjölda stundakennara.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsóknum skal skilað á vef Háskólans í Reykjavík, radningar.hr.is. Umsóknarfrestur er til og með 6. nóvember 2017.