Vefforritari
Hugsmiðjan er hönnunar- og hugbúnaðarhús sem hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að ná árangri með nýrri tækni.
Hjá Hugsmiðjunni er metnaðarfullt en jafnframt notalegt og afslappað andrúmsloft. Við leggjum mikla áherslu á að vera fyrsta flokks vinnustaður sem laðar að sér framúrskarandi fólk sem hefur ástríðu fyrir að skapa yfirburða stafrænar lausnir.
Við leitum að vefforriturum sem:
- Eru jákvæðir, metnaðarfullir og lausnamiðaðir einstaklingar
- Hafa sjálfstæða og skapandi hugsun
- Hafa ástríðu fyrir framúrskarandi notendaupplifun
- Eiga auðvelt með samskipti og samvinnu í teymisvinnu
Hæfniskröfur:
- Góð þekking á HTML, CSS og JavaScript
- Góð þekking á Node.js, NextJS, React, og Typescript
- Reynsla af vinnslu verkefna sem bera skýra tímalínu og framleiðsluáætlun
- Reynsla af samskiptum við viðskiptavini
- Menntun á sviði tölvunarfræði eða verkfræði er kostur en ekki krafa
- Um hvað snýst starfið:
- Útbúa framúrskarandi stafrænar lausnir í samstarfi við hönnuði og viðskiptavini
- Vinna með öflugu teymi að stærri hugbúnaðarverkefnum
Hugsmiðjan býður uppá:
- Möguleika á sex tíma vinnudegi
- Krefjandi og skapandi verkefni með metnaðarfullum viðskiptavinum
- Öflug teymi sem samanstanda af fagfólki
- Vinalegt starfsumhverfi og fjölskylduvæna starfsmannastefnu
- Möguleiki á fjarvinnu og sveigjanleika í viðveru
- Niðurgreiddan hádegismat, gott kaffi, og fullan ísskáp
- Sundlaug í næsta húsi
Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur
Sendið ferilskrá á starf@hugsmidjan.is