UT þjónusta og kerfisrekstur

Valitor 10. Nov 2020 Fullt starf

Valitor leitar að sérfræðingi með einstaka þjónustulund til að taka þátt í rekstri, þjónustu og þróun á notendakerfum fyrirtækisins. Valitor rekur starfsstöðvar bæði á Íslandi og erlendis en starfið er staðsett hér á landi. Valitor er PCI-DSS vottað og taka öll öryggismál mið af því.

Viljir þú starfa í framsæknu fjártæknifyrirtæki, þar sem tækniumhverfið er krefjandi og áhersla er á skýjalausnir og sjálfvirknivæðingu, gætir þú átt heima í okkar frábæra liði.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Þjónusta og rekstur útstöðva

  • Rekstur Office365 með mikilli áherslu á öryggi

  • Uppsetning og rekstur á lausnum sem nýta Azure/AWS

  • Sjálfvirknivæðing og skriftun (e. automation and scripting)

  • Aðstoð og ráðgjöf er kemur að öryggisúttektum og greiningum

  • Aðgangstýringar og rekstur AD/Azure AD

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun, og a.m.k. 2 ára starfsreynsla, sem nýtist í starfi

  • Áþreifanleg reynsla af öryggismálum í upplýsingatækni skilyrði

  • PowerShell þekking skilyrði

  • Reynsla af rekstri útstöðvar Windows/Apple; Linux þekking kostur

  • Þekking og reynsla í rekstri MS intune kostur

  • Mjög góð enskukunnátta í rituðu og töluðu máli

  • Framúrskarandi þjónustulund

  • Hungur í að læra og tileinka sér nýja tækni

  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsókninni þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvember 2020.

Nánari upplýsingar veitir Gunnar Karl Níelsson, Head of Infrastructure, IT Services & Procurement, í síma 840 6919.