Unix kerfisstjóri

Reiknistofa Bankanna 8. Jun 2021 Fullt starf

**Unix kerfisstjóri **

Við erum að styrkja Unix hópinn okkar og leitum að reynslumiklum einstakling til þess að takast á við krefjandi verkefni í öflugu fyrirtæki.

Viðkomandi kemur að rekstri og uppbyggingu á Linux/Unix umhverfum RB og viðskiptavina, ásamt tengdum hugbúnaðarkerfum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sjálfvirknivæðing á uppsetningu og rekstri kerfa

  • Daglegur rekstur á RedHat netþjónum

  • Daglegur rekstur og umsýsla á hugbúnaðarkerfum

  • Framþróun umhverfa og þátttaka í mótun tæknistefnu

  • Villugreining og bestun á lausnum í tækniumhverfi

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi eða viðeigandi starfsreynsla

  • Þekking og reynsla af rekstri á Linux er nauðsynleg

  • Þekking og reynsla af Docker og/eða Kubernetes er nauðsynleg

  • Þekking á Ansible, Chef og öðrum tólum fyrir sjálfvirknivæðingu er nauðsynleg

  • Reynsla af DevOps vinnubrögðum er kostur ásamt CI/CD pipelines

  • Reynsla af forritun er kostur


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Sótt er um í gegnum heimasíðu RB: https://rb.is/storf-i-bodi/

Umsóknum þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristjón Sverrisson forstöðumaður kerfisrekstrar kristjon.sverrisson@rb.is

Umsóknarfrestur er til og með 13. júní nk.

RB er traust og öflugt þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingartækni sem hefur þróað hinar ýmsu fjármálalausnir, þar á meðal megin greiðslukerfi landsins.

Við bjóðum góða vinnuaðstöðu, tækifæri til endurmenntunar og starfsþróunar, frábæra samstarfsfélaga og umhverfi þar sem fagmennska, öryggi og ástríða er undirstaða allra verka.