Teymisstjóri vöruhúsa gagna hjá embætti landlæknis

Embætti landlæknis 25. Mar 2024 Fullt starf

Embætti landlæknis leitar að jákvæðum og lausnamiðuðum sérfræðingi í uppbyggingu á vöruhúsum gagna á Miðstöð rafrænna heilbrigðislausna hjá embættinu. Viðkomandi mun leiða hönnun og útfærslu á allri úrvinnslu og uppbyggingu vöruhúsa gagna í nánu samstarfi við önnur teymi innan embættisins.

Embætti landlæknis rekur gagnasöfn á landsvísu og er gagnasöfnun og gagnagreiningu embættisins ætlað að uppfylla margs konar þarfir. Má þar nefna stuðning við stefnu og aðgerðir heilbrigðisyfirvalda, stuðning við heilsueflandi samfélög, nýtingu gagna vegna eftirlitsskyldu embættisins og til almennrar vefbirtingar tölfræði um heilsufar og heilbrigðisþjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Yfirumsjón með vöruhúsum embættisins

Leiða greiningu, hönnun og útfærslu á gagnavöruhúsalausnum

Yfirumsjón með skýrslugerðartólum s.s. SAP/BO og Power BI

Almenn úrvinnsla og meðhöndlun gagna úr ólíkum kerfum og samþætting þeirra


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Allar nánari upplýsingar má finna á Starfatorgi þar sem sótt er um starfið.