Sumarstarf í vefforritun

Moodup 15. Feb 2024 Fullt starf

Moodup leitar að sumarstarfsmanni í vefforritun. Í starfinu felst tæknileg aðstoð við viðskiptavini auk vöruþróunar, viðbóta og villulagfæringa hugbúnaðarþjónustunnar. Stakkur er React/Node/Postgres í TypeScript/SQL. Um er að ræða 100% starfshlutfall. Kostur ef umsækjandi hefur einnig áhuga á hlutastarfi í kjölfarið næsta vetur.

Um okkur
Moodup er ungt og ört vaxandi hugbúnaðarfyrirtæki sem mælir starfsánægju hjá 35.000 starfsmönnum á 100 vinnustöðum. Moodup sendir starfsfólki reglulegar kannanir þar sem það tjáir sig í skjóli nafnleyndar. Stjórnendur geta síðan skoðað, greint, rætt og unnið með niðurstöður mælinga í mælaborði til að bæta starfsumhverfið. Sjá nánar á Moodup.is.

Þrír starfsmenn eru hjá Moodup í dag: framkvæmdastjóri, tæknistjóri og sölustjóri. Sumarstarfið verður undir leiðsögn tæknistjóra. Við erum með skrifstofu í Sjávarklasanum úti á Granda, sem er samvinnurými (e. coworking space) með 70 fyrirtækjum. Í boði er að vinna hluta starfsins í fjarvinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð
– Samskipti og tæknileg aðstoð fyrir viðskiptavini (t.d. villulagfæringar og endurbætur á núverandi virkni)
– Þróun nýrrar virkni undir leiðsögn tæknistjóra (bæði fram- og bakendi)
– Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur
– Í háskólanámi sem nýtist í starfi (t.d. tölvunar-, kerfis-, verk-, eðlis- eða stærðfræði)
– Grunnþekking á TypeScript, React og SQL
– Færni í mannlegum samskiptum
– Gott vald á rituðu máli bæði á íslensku og ensku
– Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsóknarfrestur er til og með 10. mars. Vinsamlegast sendu umsóknina inn í gegnum umsóknarvef Alfreðs. Nánari upplýsingar um starfið veitir Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri, á netfanginu bjorn@moodup.is.