Stjórnunarleg öryggisráðgjöf Syndis

Syndis 21. Feb 2023 Fullt starf

Við leitum að starfsfólki í stjórnunarlega öryggisráðgjöf í fjölbreytt verkefni fyrir spennandi fyrirtæki.

Starfssvið:

  • Öryggisráðgjöf við viðskiptavini
  • Kynningar og námskeið
  • Vöruþróun

Hæfniskröfur:

  • Áhugi á öryggismálum og að læra nýja hluti
  • Mjög góð samskiptahæfni
  • Hafa GAMAN
  • Metnaður og samviskusemi
  • Færni í rituðu og töluðu máli, á íslensku og ensku

Hvað gerum við?
Teymið aðstoðar mörg af mest spennandi fyrirtækjum landsins og erlenda viðskiptavini við stjórnunarlegt öryggi. Dæmi um þetta er öryggisráðgjöf og úttektir, rekstrarsamfelluáætlarnir, fyrirlestrar og kynningar, áhættumöt, hlítingar, æfingar á ferlum og áætlunum o.m.fl. Einnig tökum við að okkur hlutverk upplýsingaöryggisstjóra innan annarra fyrirtækja. Reynsla af þessum verkefnum er alls ekki skilyrði. Hins vegar leitum við að starfsfólki sem er fljótt að læra, samviskusamt, skipulagt, afbragðsgott í samskiptum og tilbúið að takast á við ný verkefni.

Hvað leggjum við áherslu á?
Markmið okkar er að einfalda öryggi með skynsamlegri og notendamiðaðri nálgun og jákvæðri öryggismenningu að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á samvinnu í okkar fjölbreytilegu verkefnum, að hafa gaman í vinnunni og styðja hvert annað. Öll okkar vinna er unnin af fagmennsku og einkennist af góðum samskiptum. Við gefum okkur tíma í hugmyndavinnu og hvetjum til vöruþróunar.

Hvað bjóðum við upp á?
Syndis býður upp á frábæran og frjálslegan vinnustað, fyrsta flokks félagslíf, samkeppnishæf kjör og mjög góð starfsmannafríðindi. Umhverfið er fjölskylduvænt, vinnutíminn sveigjanlegur, heimavinna eftir hentisemi og góður stuðningur við þróun í starfi og endurmenntun.

Erum við að leita að þér? Finnst þér þetta hljóma spennandi? Sendu okkur umsókn með kynningarbréfi.

Sótt er um starfið á Alfreð. Umsóknarfrestur er til og með 15. mars.

Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað. Upplýsingar um starfið veita Ebenezer Þ. Böðvarsson (ebenezer@syndis.is) og Guðrún Valdís Jónsdóttir (gudrun@syndis.is)

Syndis er leiðandi fyrirtæki í upplýsingaöryggi sem sérhæfir sig í öryggislausnum og ráðgjöf á alþjóðamarkaði. Á síðasta ári hlaut fyrirtækið heiðursverðlaun Ský á UT-messunni 2022 fyrir framúrskarandi framlag á sviði upplýsingatækni. Fyrirtækið er í örum vexti og starfa þar nú um 50 öryggissérfræðingar. Fyrirtækið er vottað skv. ISO27001.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Sótt er um starfið á Alfreð. https://alfred.is/starf/stjornunarleg-oeryggisradgjoef-syndis-1