Starfsmaður í Posaþjónustu

Rapyd 24. Apr 2024 Fullt starf

Rapyd leitar að starfsmanni í Posaþjónustu í Collect Card Acquiring Division (CCAD)

Posaþjónusta Rapyd sér um uppsetningu og viðhaldsþjónustu á posum fyrir söluaðila.

Leitað er að einstaklingi sem býr yfir ríkri þjónustulund, hefur þekkingu og áhuga á tæknimálum og býr yfir góðri samskiptafærni.

Helstu verkefni og ábyrgð
– Uppsetning og viðhaldsþjónusta á posum
– Þjónusta við söluaðila
– Hluti af starfinu eru bakvaktir utan opnunartíma

Menntunar- og hæfniskröfur
– Reynsla og brennandi áhugi á tæknimálum
– Samstarfs- og aðlögunarhæfni, jákvæðni og þjónustulund er nauðsynleg
– Viðkomandi þarf að búa yfir grunnþekkingu netkerfa
– Iðnmenntun eða próf í raf- eða tæknigreinum er mikill kostur
– Reynsla af uppsetningu verslunarkerfa er kostur
– Geta til að vinna undir álagi og í vaktavinnu
– Góð íslensku- og enskukunnátta


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Við hvetjum öll kyn og þjóðerni til að sækja um starfið