Sölu- og markaðsfulltrúi afgreiðslulausna

Strikamerki 31. May 2017 Fullt starf

Strikamerki leitar að metnaðarfullum sölu- og markaðsfulltrúa afgreiðslulausna. Starfsmaðurinn mun hafa tækifæri til að móta starfið og hafa áhrif á vöruþróun fyrirtækisins.

Starfslýsing

  • Sækja nýja viðskiptavini og auka þjónustu hjá núverandi viðskiptavinum
  • Söluráðgjöf til nýrra og núverandi viðskiptavina
  • Innkaup, verðlagning og vörustýring afgreiðslulausna
  • Gerð og eftirfylgni söluáætlana
  • Gerð tilboða og þjónustusamninga og eftirfylgni á þeim
  • Gerð markaðsáætlana og samkeppnisgreininga
  • Umsjón með heimasíðu og samfélagsmiðlum
  • Samskipti við innlenda og erlenda birgja
  • Skapandi og lausnamiðuð hugmyndavinna

Hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Mjög góðir söluhæfileikar
  • Reynsla af afgreiðslulausnum er kostur
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Geta til að vinna sjálfstætt og vera skipulagður í vinnu
  • Almenn tölvukunnátta

Strikamerki starfar á sviði upplýsingatækni og útvegar fyrirtækjum lausnir fyrir rafrænan rekstur – þar á meðal þráðlaus netkerfi og handtölvur í vöruhús, handtölvulausnir fyrir sölu og þjónustu, prentlausnir fyrir sjávarútveg og framleiðslufyrirtæki og hug- og vélbúnað fyrir verslanir.

Frekari upplýsingar veitir Sæmundur Valdimarsson framkvæmdastjóri (saemundur@strikamerki.is).


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Nánari upplýsingar veitir Sæmundur Valdimarsson, framkvæmdastjóri (saemundur@strikamerki.is).