Software Engineer

Valitor 3. Mar 2020 Fullt starf

Valitor óskar eftir að ráða Software Engineer – Issuing Processing

Þróunarteymi Issuing Processing sér um þróun á hugbúnaði fyrir kortaútgáfu og tengdar greiðslulausnir sem Valitor býður upp á. Teymið heldur utan um kerfi á bak við kortanotkun, innri og ytri vefþjónustur, uppgjörskerfi gagnvart bönkum og korthöfum, farsímagreiðslur eins og Apple Pay o.fl. Teymið er reynslumikið og hefur unnið að allri þeirri framþróun í kringum kortaviðskipti sem hefur átt sér stað hérlendis undanfarin ár.

Við leitum að kraftmiklum einstaklingi sem hefur áhuga á að koma og vera með okkur í skemmtilegum verkefnum sem eru framundan.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði eða sambærilegt

  • 3+ ára reynsla af forritun í .NET/C#

  • Reynsla af vinnu í agile þróunarteymi

  • Áhugi á sjálfvirknivæðingu í prófunum, buildum og útgáfum

  • Færni í mannlegum samskiptum og hópavinnu

  • Lausnamiðað hugarfar og vilji til að takast á við breytilegar áskoranir

  • Góð íslensku og ensku kunnátta í ræðu og riti

Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 10. mars 2020.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Hrafn Pétursson í síma 525-2000 eða netfanginu sigurdur.hrafn.petursson@valitor.com


Sækja um starf