Software Engineer
 
					
					
															
										
					Valitor óskar eftir að ráða Software Engineer – Issuing Processing
Þróunarteymi Issuing Processing sér um þróun á hugbúnaði fyrir kortaútgáfu og tengdar greiðslulausnir sem Valitor býður upp á. Teymið heldur utan um kerfi á bak við kortanotkun, innri og ytri vefþjónustur, uppgjörskerfi gagnvart bönkum og korthöfum, farsímagreiðslur eins og Apple Pay o.fl. Teymið er reynslumikið og hefur unnið að allri þeirri framþróun í kringum kortaviðskipti sem hefur átt sér stað hérlendis undanfarin ár.
Við leitum að kraftmiklum einstaklingi sem hefur áhuga á að koma og vera með okkur í skemmtilegum verkefnum sem eru framundan.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- 
Háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði eða sambærilegt 
- 
3+ ára reynsla af forritun í .NET/C# 
- 
Reynsla af vinnu í agile þróunarteymi 
- 
Áhugi á sjálfvirknivæðingu í prófunum, buildum og útgáfum 
- 
Færni í mannlegum samskiptum og hópavinnu 
- 
Lausnamiðað hugarfar og vilji til að takast á við breytilegar áskoranir 
- 
Góð íslensku og ensku kunnátta í ræðu og riti 
Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 10. mars 2020.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Hrafn Pétursson í síma 525-2000 eða netfanginu sigurdur.hrafn.petursson@valitor.com
Sækja um starf