Sérfræðingur í vöruhúsi gagna

Borgun 6. Mar 2019 Fullt starf

Borgun er leiðandi fjármálafyrirtæki í þróun og hagnýtingu lausna á sviði rafrænnar greiðslumiðlunar.

Hugbúnaðarþróun Borgunar leitar að öflugum liðsmanni til að takast á við fjölbreytt, skemmtileg og krefjandi verkefni.

Helstu verkefni:

  • Greining, hönnun og þróun vöruhúss gagna, gagnamarkaða og teninga.

  • Viðhald og hönnun á stofn- og vöruhúsagögnum.

  • Þróun, viðhald og rekstur gagnavinnslna.

  • Framsetning viðskiptaupplýsinga í skýrslur og á mælaborð.

Hæfniskröfur:

Háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði eða sambærilegu.

  • Mjög góð þekking og reynsla af T-SQL og Microsoft SQL Server er skilyrði.

  • Góð þekking á SQL Server Analysis Services (SSAS), SQL Server Integration Services
    (SSIS), SQL Server Reporting Services (SSRS) og PowerBI er æskileg.

  • Reynsla af notkun WhereScape Red er kostur.

  • Reynsla af gerð gagnalíkana og þróunar á vöruhúsi gagna er kostur.

  • Þekking og reynsla af Agile aðferðafræði er kostur.

  • Skipulögð og öguð vinnubrögð.

  • Hæfni til að vinna í teymum.

  • Fagmennska, frumkvæði og ábyrgð við úrlausn verkefna.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurjón Þráinsson, þróunarstjóri, í síma 859-7969. Umsóknum skal skila á vef Borgunar, https://www.borgun.is. Umsóknafrestur er til og með 20. mars.