Sérfræðingur í viðskiptagreind (BI)

Expectus 20. Oct 2020 Fullt starf

Við hjá Expectus leitum að starfsfólki sem deilir okkar ástríðu um mikilvægi gagna og upplýsinga til ákvarðanatöku.

Sérfræðingar okkar aðstoða stærstu fyrirtæki landsins til að ná varanlegum árangri með því að nýta sér rauntímaupplýsingar til ákvarðanatöku. Við vinnum náið með viðskiptavinum okkar við að hanna og viðhalda framúrskarandi stjórnendaupplýsingum og gerum þeim kleift að spyrja og svara sínum eigin spurningum á einfaldan hátt. Þessa hæfni byggjum við á bestu aðferðarfræðum og hugbúnaði hverju sinni.

Helstu verkefni:

  • Uppbygging vöruhúss gagna hjá viðskiptavinum
  • Uppbygging og framsetning stjórnendaupplýsinga
  • Innleiðing á gæðaeftirliti á viðskiptaferlum
  • Þjónusta til núverandi viðskiptavina á lausnum sem eru í rekstri hjá þeim

Hæfniskröfur:

  • Háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði eða sambærileg menntun
  • Þekking í gagnagrunnsforritun (SQL, TSQL, PL/SQL)
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, frumkvæði og vilji til að miðla þekkingu
  • Skapandi hugsun og hugmyndaauðgi ásamt hæfni til að koma hugmyndum sínum á framfæri
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, skipulagshæfileikar
  • Löngun til að vaxa í starfi og læra eitthvað nýtt
  • Hreint sakavottorð

Við bjóðum starfsfólki okkar einstakt tækifæri til að vinna í fjölbreyttu, áhugaverðu og skemmtilegu umhverfi með verkefni í mismunandi atvinnugreinum hjá stærstu fyrirtækjum landsins.

Umsóknarfrestur er til og með 2. nóvember nk.

Um Expectus
Expectus er fyrirmyndarfyrirtæki VR með yfir 20 sérfræðinga í ráðgjöf og hugbúnaðargerð.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um störfin á heimasíðu Ráðum www.radum.is Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Nánari upplýsingar veitir Agla Sigríður Björnsdóttir hjá Ráðum ráðningarstofu agla@radum.is