Sérfræðingur í tæknimálum og rekstri

Eldum rétt 30. Aug 2021 Fullt starf

Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á stafrænni tækni og nýtingu á henni til að auka skilvirkni í rekstri og framleiðsluferlum ásamt því að lágmarka mistök.

Mörg mismunandi verkefni eru í boði og myndum við sníða starfið að hæfileikum viðkomandi aðila.

Verkefnin geta verið þverfagleg og tengjast rekstrarstjórnun, kerfisstjórnun en einnig hugbúnaðarþróun með áherslu á þarfagreiningu og verkefnastjórnun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Tryggja að framleiðslusvið hafi aðgang að réttum upplýsingum á réttum tíma.
  • Auka þverfaglega skilvirkni með því að þróa ferli og staðla.
  • Koma auga á tækifæri fyrir sjálfvirknivæðingu. Skilgreina, áætla og framfylgja verkefnum.
  • Bæta gæðastjórnum með því að útbúa gátlista og skýrt verklag sem viðhaldið er með tölvukerfum.
  • Bera ábyrgð á því að öll kerfi séu virk, uppfærð og nákvæm.
  • Fara yfir ábendingar frá viðskiptavinum, forgangsraða og sjá til þess að úrbætur eigi sér stað.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í rekstrar-, iðnaðaðar-, hugbúnaðarverkfræði, tölvunarfræði eða sambærileg.
  • Reynslu á forritun er kostur.
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðmót.
  • Góð tölvuþekking.

Umsóknarfrestur er til 5. september. Hægt er að senda fyrirspurnir á robert@eldumrett.is fyrir frekari upplýsingar um starfið.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsóknir skulu berast á eftirfarandi slóð https://alfred.is/starf/serfraedingur-i-taeknimalum-og-rekstri