Sérfræðingur í stafrænni miðlun

Sjóvá 2. Nov 2018 Fullt starf

Við leitum að hug­mynd­aríkum og metnaðarfullum ein­stak­lingi með brenn­andi áhuga á stafrænum sam­skiptum. Í boði er spenn­andi starf hjá kraft­miklu fyr­ir­tæki

Við leitum að einstaklingi með

  • brennandi áhuga á rafrænum samskiptum, markaðssetningu og þjónustu
  • skipulagshæfileika og getu til að starfa sjálfstætt
  • þekkingu á verkefnastjórnun
  • góða tilfinningu fyrir íslensku máli
  • reynslu af vefmælingum og túlkun gagna
  • grunnþekkingu á HTML og CSS

Starfið felur í sér:

  • umsjón með að framfylgja stefnu í stafrænum samskiptum og þjónustu
  • yfirumsjón með vefsvæði og samfélagsmiðlum
  • samskipti við undirverktaka vegna vefmála
  • verkefni tengd innri og ytri markaðssetningu

Hjá Sjóvá starfar sterkur og skemmti­legur hópur fólks sem kapp­kostar að veita viðskipta­vinum af­burðaþjón­ustu.

Sjóvá er Fyr­ir­tæki árs­ins í flokki stærri fyr­ir­tækja í vinnu­markaðskönnun VR. Kann­anir sýna einnig að starfsánægja hjá Sjóvá er með því allra mesta sem mæl­ist hér­lendis.

Sjóvá er efst trygg­ingafélaga í Íslensku ánægju­vog­inni. Við gleðjumst yfir því að viðskipta­vinir okkar séu ánægðari


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Nán­ari upp­lýs­ingar veitir Sig­ur­jón Andrés­son markaðsstjóri í síma 844 2022 eða sigurjon.andresson@sjova.is. Umsókn skal fylla út á sjova.is Umsókn­ar­frestur er til og með 12. nóvember nk.