Sérfræðingur í rekstrarþjónustu

Þekking hf. 7. Jul 2020 Fullt starf

Við bætum við hópinn! Rekstrarþjónusta Þekkingar hlakkar til að fá liðsauka og er staðan í boði hvort sem er á Akureyri eða í Kópavogi. Viðkomandi hefur umsjón og eftirlit með kerfum og annast uppsetningar, breytingar og ráðgjöf.

Sérfræðingur í rekstrarþjónustu er í samskiptum við starfsfólk annarra sviða, sem og viðskiptavini, og vinnur markvisst að því að viðhalda heilbrigðum rekstri kerfa eftir viðurkenndum vinnuaðferðum og taka þátt í að þróa verkferla enn frekar. Um er að ræða fullt starf og stöku sinnum vaktir utan hefðbundins dagvinnnutíma.

Hæfniskröfur

  • Minnst 4 ára reynsla í starfi kerfisstjóra
  • Menntun á sviði upplýsingatækni t.d. kerfisfræði, kerfisstjórnun eða sambærilegt
  • Tæknilegar vottanir mikill kostur
  • Færni í mannlegum samskiptum, mikil þjónustulund og góð íslenskukunnátta
  • Frumkvæði, öguð vinnubrögð og úrræðasemi

Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Upplýsingar: Marteinn Sigurðsson, sviðsstjóri, sími 460 3147 Ásta Bærings, mannauðsstjóri, sími 460 3166

Umsóknarfrestur: Umsóknir berist til atvinna@thekking.is og er umsóknarfrestur til og með 16.ágúst 2020

Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað.