Sérfræðingur í Python vefforritun

Hagstofa Íslands 14. Oct 2020 Fullt starf

Starfið felst í tæknilegri hönnun upplýsingakerfa með áherslu á vefhögun.
Starfsmaðurinn mun sinna samþættingu ýmissa kerfa í samstarfi við vef- og gagnagrunnssérfræðinga stofnunarinnar ásamt því að auka skilvirkni kerfa með bestun á úrvinnslum þeirra. Starfmaðurinn mun jafnframt forrita bakendavinnslur vefkerfa og setja vefkerfi í rekstur. Starfsmaðurinn vinnur í vefteymi Hagstofunnar.

Starfið er tímabundið til eins árs.

HÆFNISKRÖFUR

  • Vilji til að læra á nýjar lausnir og aðferðir og kynna sér í dýpt eldri lausnir

  • Reynsla og þekking á almennt viðurkenndum venjum í hugbúnaðarþróun

  • Þekking og reynsla af notkun og uppbyggingu Python forritunartungumálsins auk Flask og/eða Django er nauðsynleg

  • Þekking á tæknilegri högun upplýsingakerfa, þ.m.t. almennra vefkerfa

  • Þekking og reynsla af vefstöðlum og vefhönnun, þ.m.t. svargæfa hönnun og bestun fyrir vefi

  • Þekking og reynsla af almennum vefþjónabúnaði (e. web server) og vefselum (e. proxy servers) er æskileg

  • Þekking og reynsla af vöktunarkerfum og samskipanastjórnunartólum (e. configuration management tools) er æskileg

  • Þekking á helstu öryggisógnum upplýsingakerfa og fyrirbyggjandi aðgerðum er æskileg

  • Þekking og reynsla af rekstri netþjóna er kostur

  • Háskólapróf í tölvunarfræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi er kostur

Um er að ræða fullt starf og er mikilvægt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytisins og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknafrestur rennur út.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Hauksdóttir í síma 5281000.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsóknarfrestur er til og með 22.10.2020. Sótt er um starfið á vef starfatorgs, www.starfatorg.is