Sérfræðingur í áætlanagerð

Expectus 28. Dec 2020 Fullt starf

Við hjá Expectus leitum að starfsfólki sem deilir okkar ástríðu um mikilvægi gagna og upplýsinga til ákvarðanatöku.
Expectus er fyrirmyndarfyrirtæki VR með yfir 20 sérfræðinga í ráðgjöf og hugbúnaðargerð.

Sérfræðingar okkar aðstoða stærstu fyrirtæki landsins við að ná varanlegum árangri með því að nýta sér rauntímaupplýsingar til ákvarðanatöku.
Við vinnum náið með viðskiptavinum okkar við að hanna og viðhalda framúrskarandi stjórnendaupplýsingum og gerum þeim kleift að svara eigin spurningum á einfaldan hátt.
Þessa hæfni byggjum við á bestu aðferðarfræðum og hugbúnaði hverju sinni.

Vegna aukinna verkefna þá erum við að leita að snillingum til að sinna ráðgjöf til viðskiptavina okkar við gerð áætlanalíkana.

Helstu verkefni:

  • Hönnun áætlunarkerfa í náinni samvinnu við viðskiptavini sem styðja við „rúllandi“ spár og markmiðasetningu
  • Líkanagerð fyrir sölu-, rekstur, sjóðstreymi og efnahag fyrirtækja
  • Hönnun og uppbygging á mælaborðum og stjórnendaupplýsingum
  • Myndræn framsetning á gögnum fyrir starfsmenn og stjórnendur
  • Þjónusta til núverandi viðskiptavina á lausnum sem eru í rekstri hjá þeim

Hæfniskröfur:

  • Háskólapróf í verkfræði, hagfræði, eða sambærileg menntun
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, frumkvæði og vilji til að miðla þekkingu
  • Skapandi hugsun ásamt hæfni til að koma hugmyndum á framfæri
  • Þekking á áætlunargerð og uppsetningu spálíkana í Excel
  • Þekking á áætlunarkerfum, eins og Kepion, ValuePlan og Cognos er kostur
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfileikar
  • Löngun til að vaxa í starfi og læra eitthvað nýtt
  • Hreint sakavottorð

Við bjóðum starfsfólki okkar einstakt tækifæri til að vinna í fjölbreyttu, áhugaverðu og skemmtilegu umhverfi með verkefni í mismunandi atvinnugreinum hjá stærstu fyrirtækjum landsins.


Upplýsingar fyrir umsækjendur

Sótt er um starfið á heimasíðu Ráðum ráðningarstofu www.radum.is

Umsóknarfrestur er til og með 10. janúar nk.

Nánari upplýsingar veitir Agla Sigríður Björnsdóttir hjá Ráðum agla@radum.is