Sérfræðingur/Forritari í Microsoft Dynamics 365 og Power Platform

Arango ehf. 19. Dec 2021 Fullt starf

Arango er hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, innleiðingu og samþættingu Microsoft hugbúnaðarlausna í skýinu sem styrkja og bæta stafræna ferla fyrirtækja.
Við leitum að metnaðarfullum snillingum til að taka þátt í þróun á lausnum ásamt því að vinna í verkefnum með viðskiptavinum okkar sem fara ört fjölgandi.

Við bjóðum uppá frábært starfsumhverfi og aðstöðu þar sem þú munt hafa áhrif á hvernig þú þróast í starfi.

Meðal verkefna

  • Taka þátt í þróun á hugbúnaðarlausnum Arango
  • Taka þátt í innleiðingu og þjónustu á ýmsum stafrænum ferlum og hugbúnaðarlausnum fyrir viðskiptavini
  • Taka þátt í að móta framtíðarsýn og vinnulag fyrir mörg af stærri fyrirtækjum landsins
  • Mæta í vinnuna og vera hress

Hvað þarf til

  • Að minnsta kosti þriggja ára almenn starfsreynsla á vinnumarkaði
  • Háskólapróf í tölvunar- eða verkfræði
  • Áhuga og metnað til að kynna sér nýjungar og nýja tækni
  • Getu til að setja sig inní margvísleg úrlausnarefni
  • Góða samskiptahæfni og ríka þjónustulund

Hjá Arango starfa einstaklingar með mikla reynslu af Microsoft Dynamics 365, Power Platform og Azure skýjalausnum sem þú gætir lært mikið af en einnig kennt þeim fullt af nýjum hlutum.

Ef þú vilt kynnast og tileinka þér nýja og skemmtilega tækni og vinna með ólíkum fyrirtækjum að fjölbreyttum úrlausnarefnum gæti þetta verið starf fyrir þig.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Sendu okkur ferilskrá á starf@arango.is. Hlökkum til að heyra frá þér.