Sérfræðingur

Expectus 27. Mar 2019 Fullt starf

Við hjá Expectus erum að leita að starfsfólki til að vinna með okkur í að umbylta ákvarðanatöku íslenskra fyrirtækja.

Ráðgjafar okkar aðstoða stærstu fyrirtæki landsins við að ná varanlegum árangri með því að nýta sér rauntímaupplýsingar til ákvarðanatöku. Við vinnum náið með okkar viðskiptavinum við að hanna og viðhalda frammúrskarandi stjórnendaupplýsingum og gerum þeim kleift að spyrja og svara sínum eigin spurningum á einfaldan hátt. Þessa hæfni byggjum við á bestu aðferðarfræðum og hugbúnaði hverju sinni.

Við erum að leita að starfsfólki sem deilir okkar ástríðu um mikilvægi gagna og upplýsinga til ákvarðanatöku í gegnum meðfylgjandi þrjú hlutverk:

  • Gagna arkitekt (i.e. Data Architect) sem vinnur náið með okkar viðskiptavinum við að skilja núverandi og framtíðar umhverfi til árangurs, byggt á þörfum notenda. Meðal verkefna er gerð innleiðingaráætlana og þjálfun starfsfólks á notkun viðeigandi hugbúnaðar.
  • Gagna verkfræðingur (i.e. Data Engineer) vinnur náið með hagsmunaaðilum okkar viðskiptavina við að safna saman gögnum úr grunnkerfum yfir í vöruhús gagna til að hægt sé að miðla þeim til notenda á samfelldan hátt.
  • Gagna vísindamenn og greinendur (i.e. Data Scientists) aðstoða fyrirtæki við að byggja upp greiningarhæfni þeirra með því að hanna mælaborð og greiningar með Tableau og/eða PowerBI og kenna einstaklingum að smíða sínar eigin greiningar.

Við bjóðum okkar starfsfólki einstakt tækifæri til að vinna í fjölbreyttu, áhugaverðu og skemmtilegu umhverfi með verkefni í mismunandi atvinnugreinum hjá stærstu fyrirtækjum landsins.

Hjá Expectus starfa yfir 20 sérfræðingar í ráðgjöf og hugbúnaðargerð og var valið fyrirtæki ársins 2016, 2017 og 2018 í hópi milli stórra fyrirtækja hjá VR.

Helstu verkefni:

  • Þjónusta til núverandi viðskiptavini á lausnum sem eru í rekstri í dag
  • Uppbygging á greiningum, mælaborðum og skýrslum með Tableau og Power BI
  • Uppbygging á áætlunar- og spálíkönum með Kepion
  • Uppbygging vöruhús gagna hjá fyrirtækjum með Discovery Hub frá TimeXtender og exAnalytics.

Hæfniskröfur:

  • Háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði eða sambærileg menntun
  • Mikil þekking í gagnagrunnsforritun (SQL, TSQL, PL/SQL)
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, frumkvæði og vilji til að miðla þekkingu
  • Skapandi hugsun og hugmyndaauðgi ástamt hæfni til að koma hugmyndum sínum á framfæri
  • Sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfileikar
  • Löngun til að vaxa í starfi og læra eitthvað nýtt
  • Hreint sakavottorð

Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Upplýsingar fyrir umsækjendur Umsóknarfrestur er til 15. apríl. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sindri Sigurjónsson í sindri@expectus.is