Senior Information Security Consultant

Syndis 9. Oct 2023 Fullt starf

Við leitum að starfsfólki í stjórnunarlega öryggisráðgjöf (Information Security Management) í fjölbreytt verkefni fyrir spennandi fyrirtæki.

Starfssvið:
– Upplýsingaöryggisráðgjöf fyrir viðskiptavini
– Kynningar og námskeið
– Vöruþróun

Hæfniskröfur:
– Haldbær reynsla á sviði upplýsingaöryggis
– Sjálfstæði í vinnubrögðum
– Metnaður og samviskusemi

Hvað gerum við?
Teymið aðstoðar mörg af mest spennandi fyrirtækjum landsins og erlenda viðskiptavini við stjórnunarlegt öryggi. Dæmi um þetta er öryggisráðgjöf og úttektir, framkvæmd og verkefnastjórnun umbótaverkefna öryggis, áætlanir um samfelldan rekstur, fyrirlestrar og kynningar, áhættumöt, hlítingar við lög, reglugerðir eða staðla, æfingar á ferlum og áætlunum o.m.fl. Einnig tökum við að okkur hlutverk upplýsingaöryggisstjóra innan fyrirtækja. Reynsla af öllum þessum verkefnum er ekki skilyrði, en gott er að hafa reynslu af verkefnum í upplýsingaöryggi. Hins vegar leitum við að starfsfólki sem er samviskusamt, skipulagt, afbragðsgott í samskiptum og tilbúið að takast á við ný verkefni.

Hvað leggjum við áherslu á?
Markmið okkar er að einfalda öryggi með skynsamlegri og notendamiðaðri nálgun og jákvæðri öryggismenningu að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á samvinnu í okkar fjölbreytilegu verkefnum, að hafa gaman í vinnunni og styðja hvert annað. Öll okkar vinna er unnin af fagmennsku og einkennist af góðum samskiptum. Við gefum okkur tíma í hugmyndavinnu og hvetjum til vöruþróunar.

Hvað bjóðum við upp á?
Syndis býður upp á frábæran og frjálslegan vinnustað, fyrsta flokks félagslíf, samkeppnishæf kjör og mjög góð starfsmannafríðindi. Umhverfið er fjölskylduvænt, vinnutíminn sveigjanlegur, heimavinna eftir hentisemi og góður stuðningur við þróun í starfi og endurmenntun.

Erum við að leita að þér? Finnst þér þetta hljóma spennandi? Sendu okkur umsókn með kynningarbréfi þar sem m.a. er gerð grein fyrir reynslu á sviði upplýsingaöryggis.

Sótt er um starfið á Alfreð. Umsóknarfrestur er til og með 3. nóvember.

Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað. Upplýsingar um starfið veita Ebenezer Þ. Böðvarsson (ebenezer@syndis.is) og Guðríður Steingrímsdóttir (gudridur@syndis.is).

Syndis er leiðandi fyrirtæki í upplýsingaöryggi sem sérhæfir sig í öryggislausnum og ráðgjöf á alþjóðamarkaði. Á síðasta ári hlaut fyrirtækið heiðursverðlaun Ský á UT-messunni 2022 fyrir framúrskarandi framlag á sviði upplýsingatækni. Fyrirtækið er í örum vexti og starfa þar nú um 50 öryggissérfræðingar. Fyrirtækið er vottað skv. ISO27001.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Sótt er um starfið á Alfreð. Umsóknarfrestur er til og með 3. nóvember.