Product Owner / Vörustjóri
Product Owner / Vörustjóri
Ertu Product Owner (vörustjóri) sem hefur áhuga á að móta hvernig tækni styður við heilbrigðisþjónustu?
Hjá Leviosa erum við að byggja nýja kynslóð rafrænna sjúkraskráarkerfa (EMR – electronic medical record) sem dregur úr þeim tíma sem heilbrigðisstarfsfólk ver við tölvuskjái og gefur þeim meiri tíma með sjúklingum.
Leviosa var stofnað af lækni og er knúið áfram af teymi sem sameinar ríkulegan klínískan skilning og sterka tæknilega hæfni. Við brennum fyrir að einfalda vinnu í heilbrigðisþjónustu og styrkja fagfólk með snjöllum verkfærum. Við erum 10 einstaklingar í stækkandi teymi, staðsett á Smáratorgi 3 í Kópavogi og leitum nú að lykilaðila í hlutverk Product Owner (PO) sem tekur skýra ábyrgð á vörusýn, forgangsröðun og tryggir að réttir hlutir séu byggðir á réttum tíma.
Þú munt
- Móta vörusýn og forgangsröðun: halda utan um roadmap og backlog með skýrum forgangi út frá notendaþörfum og viðskiptalegum markmiðum.
- Skilgreina verkefni áður en þau fara í þróun: skrifa user stories/kröfur, markmið, acceptance criteria og tryggja að teymið hafi skýrar upplýsingar áður en vinna hefst.
- Vinna náið með notendum og viðskiptavinum: taka reglulega samtöl, greina þarfir, prófa hugmyndir og tryggja að endurgjöf skili sér í skýra stefnu.
- Tryggja eftirfylgni og gæði afhendingar: vera ábyrg(ur) fyrir því að virkni sem fer í Leviosa virki eins og ætlað var og leysi raunveruleg vandamál.
- Vinna þvert á teymi: vera ábyrg(ur) fyrir Product Design og eiga í nánu samstarfi með þróunarteymi og QA til að tryggja skilvirkt flæði frá hugmynd að útgáfu.
- Stýra væntingum og samskiptum: tryggja að forgangsröðun sé skiljanleg og að breytingar fari í gegnum skýrt ferli.
Hlutverkið gæti hentað þér ef þú
- Hefur 5+ ára reynslu sem Product Owner / Product Manager (eða sambærilegt hlutverk) í stafrænum vörum.
- Ert vön/vanur að vinna með kröfur, user stories og acceptance criteria og gera óljós vandamál að skýrum verkefnum.
- Getur unnið náið með þróunarteymi og tryggt að „what, why & when“ sé kristaltært.
- Nýtur þess að tala við notendur, fá innsýn og umbreyta henni í skýra vöruvinnu.
Æskileg persónuleg hæfni
- Framúrskarandi samskipta- og teymisfærni.
- Sterk dómgreind og geta til að taka erfiðar ákvarðanir.
- Skipulag og agi í vinnubrögðum.
- Hugrekki til að setja skýr mörk
Við bjóðum þér
– Samkeppnishæf laun og aðlaðandi kauprétt.
– Tækifæri til að móta ört vaxandi vöru.
– Sveigjanlegan vinnutíma og blandað vinnufyrirkomulag.
– Frábæran hádegismat í mötuneytinu Brasa.
– Kraftmikið vinnuumhverfi með mikil vaxtartækifæri.
– Lykilhlutverk í metnaðarfullu teymi sem brennur fyrir að hafa bein áhrif á líf fólks.
Ef þú ert spennt/ur að byggja lausnir sem hjálpa heilbrigðisstarfsfólki að eyða minni tíma fyrir framan skjái og meiri tíma með sjúklingum viljum við heyra frá þér!
Umsóknarfrestur er til 06.03.2026.
Sækja um starf
Sendu ferilskrá og kynningarbréf á info@leviosa.is Allar nánari upplýsingar veitir Matthías Leifsson, matthias@leviosa.is