Öflugur forritari

Edico 17. Apr 2023 Fullt starf

Við erum að leita að öflugum aðila til að sinna forritun og þjónustu á lausnum Edico sem eru handtölvulausnir og afgreiðslulausnir. Reynsla í faginu er mikill kostur. Viðkomandi þarf að geta átt í góðum samskiptum við fólk og geta unnið sjálfstætt í fjölbreyttum verkefnum. Kostur ef viðkomandi hefur reynslu af viðmótshönnun.

Við erum með góða starfsaðstöðu og reynslumikla starfsmenn. Edico leggur mikla áherslu á að hafa ánægju af starfinu og að einstaklingar geti vaxið í starfi með möguleika á frekari menntun. Þó fæstir þekki til Edico þá þekkja flestir landsmenn til þeirra lausna sem við útvegum, enda eru þær notaðar hjá helstu fyrirtækjum landsins. Edico er metnaðarfullt fyrirtæki sem sérhæfir sig í afgreiðslu- og þjónustulausnum sem eru oft séraðlagaðar að þörfum hvers viðskiptavinar. Það er gefandi að geta hjálpað viðskiptavinum okkar þannig að það beri sýnilegan árangur.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Forritun á Edico hugbúnaðarlausnum (Edico Handheld og Edico Visit)
  • Þarfagreining og ráðgjöf
  • Innleiðing á sérlausnum fyrir viðskiptavini
  • Bilanagreining og lagfæringar hjá viðskiptavinum
  • Verkefnastýra eigin innleiðingarverkefnum
  • Samskipti við viðskiptavini
  • Samskipti við erlenda birgja
  • Kynna sér nýjungar og vinna að vöruþróun
  • Almenn þjónusta á lausnum Edico hjá viðskiptavinum

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Góð kunnátta og reynsla á helstu forritunarmálum (C#, JavaScript o.fl.)
  • Góð kunnátta og reynsla af gagnagrunnum og SQL
  • Góð þekking á hvernig netkerfi virka
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund
  • Eiga auðvelt með að vinna sjálfstætt
  • Eiga auðvelt með að tileinka sér nýjungar
  • Frumkvæði og metnaður
  • Góð enskukunnátta

Sækja um starf