Netsérfræðingur

Hringdu 4. Apr 2019 Fullt starf

Hringdu óskar eftir netsérfræðingi í fulla stöðu hjá vaxandi fjarskiptafyrirtæki.

Hæfniskröfur:

  • Umsækjandi þarf að hafa hæfileika til þess að miðla skoðunum sínum, reynslu og þekkingu innanhúss, til viðskiptavina og birgja

  • Umsækjandi þarf að hafa áhuga og metnað til þess að gegna mikilvægu hlutverki hjá fyrirtæki í miklum vexti

  • Umsækjandi þarf að hafa afburða samskiptahæfileika og geta unnið vel undir álagi

  • Unnið er með mjög breitt lausnarmengi og er mikil áhersla á notkun open source hugbúnaðar

Umsækjandi þarf að hafa reynslu og þekkingu á:

  • Uppbyggingu netkerfa

  • Uppbyggingu flókins hugbúnaðar og samþættingu kerfa

  • Innkaupum á netkerfa- og tæknibúnaði

  • Netkerfisbúnaði og almennum samskiptamáta netkerfa, svo sem BGP, OSPF, IP MPLS o.s.frv.

  • SS7 og VoIP ásamt símkerfum eins og Kamillio, Asterisk, Freeswitch og openSIPS

Æskileg þekking og reynsla:

  • CCNP R&S eða álíka

  • Session Border Control

  • MySQL, MariaDB, MSSQL

  • VMWare og stýrikerfi

  • Radius þjónar

  • Bash scripting

  • Æskilegt að umsækjandi hafi að lágmarki þriggja ára reynslu úr sambærilegu starfi

Um okkur

Hringdu er lítið en ört vaxandi fjarskiptafyrirtæki þar sem hæfileikaríkir einstaklingar geta unnið sig upp í starfi. Hér vinna fáar hendur mörg og mismunandi verk og er því starfið fjölbreytt, reynslumikið og ríkt af ábyrgð. Við fáum heimsendan mat í vinnuna fimm daga vikunnar en drögum fram grillið við góð tækifæri. Starfsmannafélagið Svaraðu sér fyrir góðu skemmtanalífi og hér elska allir kaffi & ketti.

Hringdu var valið Fyrirmyndafyrirtæki hjá VR árið 2017 og 2018.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsókn berist á egillm@hringdu.is og er umsóknarfrestur til 30. apríl. Farið verður með öll gögn sem trúnaðarmál.

Fyrir frekari upplýsingar um starfið má senda póst á gunnar@hringdu.is