Netkerfasérfræðingur

Intellecta ehf. 6. Apr 2018 Fullt starf

Fyrir umbjóðanda okkar sem er öflugt og traust tæknifyrirtæki leitum við að framsæknum og ábyrgðarfullum sérfræðingi til að sinna ráðgjafar- og hönnunarverkefnum ásamt flóknari rekstrarmálum fyrir stóra og kröfuharða viðskiptavini.

Um krefjandi starf er að ræða þar sem unnið er með nýjustu tækni á sviði netlausna.

Viðkomandi yrði hluti af teymi öflugra sérfræðinga.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun í verk- eða tæknifræði er kostur

  • Reynsla af rekstri búnaðar frá Juniper/Cisco/Fortinet/Lenovo er kostur

  • Yfirgripsmikil þekking á MPLS, IP, BGP, OSPF, IS-IS, Layer 2 og Layer 3 samskiptum

  • Tveggja ára reynsla af netrekstri er skilyrði

Gott tækifæri í boði.

Nánari upplýsingar veita Torfi Markússon (torfi@intellecta.is) og Ari Eyberg (ari@intellecta.is) í síma 511 1225.

Umsóknarfrestur er til og með 12. apríl 2018.Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja starfsferilskrá.

Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja starfsferilskrá.