Kerfisstjóri

Icelandair Hotels 19. Feb 2021 Fullt starf

Icelandair hótel leita að framúrskarandi og kraftmiklum kerfisstjóra þar sem miklar breytingar og mörg spennandi verkefni eru framundan.

Starfssvið:

• Almennur rekstur og þróun á tölvu-og netkerfum

• Rekstur öryggis-, síma- og sjónvarpskerfa

• Hönnun, uppsetning og endurskipulagning á tölvu- og netkerfum

• Þjónusta og samskipti við notendur

Hæfniskröfur:

• Nám í tölvunarfræði, kerfisfræði eða nám/reynsla sem nýtist í starfi

• Góð reynsla af rekstri tölvu- og netkerfa

• Góð þekking á Microsoft Active Directory, Exchange, DNS, DHCP æskileg

• Góð þekking á Cisco Meraki Wifi, beinum og eldveggjum æskileg

• Microsoft og Cisco gráður eru kostur

• Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð

• Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni

• Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli

Icelandair hótel er fyrirtæki sem starfar í alþjóðlegu umhverfi þar sem lögð er áhersla á samvinnu, sveigjanleika og frumkvæði í starfi. Hjá fyrirtækinu starfar samhentur ­hópur með sameiginleg markmið, þar sem borin er virðing fyrir gestum, samstarfsmönnum og náttúrunni.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsóknarfrestur er til og með 4.mars.

Nánari upplýsingar veitir:Aðalsteinn Þorbergsson, adalsteinnt@icehotels.is