Hugbúnaðarsérfræðingur – Solution architect

OR 21. Feb 2023 Fullt starf

Hugbúnaðarsérfræðingur – Solution architect

Við leitum að sjálfstæðum og lausnamiðuðum einstaklingi með brennandi áhuga og þekkingu á stafrænni tækni. Sem hugbúnaðarsérfræðingur hjá okkur ertu hluti af öflugu teymi sérfræðinga á Upplýsingatæknisviði OR – samstæðunnar

Um fjölbreytt starf er að ræða en helstu verkefni eru að hanna, þróa og viðhalda kerfum samstæðunnar, samþætting lausna hjá samstæðunni, þátttaka og frumkvæði í greiningu og hönnun á nýjum lausnum ásamt samvinnu með ytri og innri aðilum sem koma að hugbúnaðargerð.

Ef þú er skapandi, býrð yfir skipulagshæfni og vilt þróast í starfi þá viljum við heyra frá þér.

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Reynsla af forritun í Net, C#, CSS og JavaScript
  • Reynsla af því að byggja upp stærri hugbúnaðarlausnir og viðhalda þeim í rekstri
  • Reynsla af Azure DevOps er kostur
  • Þekking á Microsoft SQL gagnagrunnu
  • Reynsla af forritun í SharePoint, CRM og öðrum Microsoft lausnum er kostur
  • Þekking á skýjaþjónustum er kostur
  • Frumkvæði og hæfni til að starfa sjálfstætt
  • Geta til að vinna með öðrum og túlka kröfur þeirra og væntingar
  • Háskólapróf eða sambærileg menntun/reynsla sem nýtist í starfi

Í boði eru fjölbreytt verkefni í fjölskylduvænu starfsumhverfi. 

Hvernig vinnustaður er OR samstæðan?

Nánari upplýsingar veitir Sæmundur Friðjónsson, forstöðumaður Upplýsingatækni hjá Orkuveitu Reykjavíkur: saemundur.fridjonsson@or.is

Umsóknarfrestur er til og með 3. mars 2023.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Við leitum að sjálfstæðum og lausnamiðuðum einstaklingi með brennandi áhuga og þekkingu á stafrænni tækni. Sem hugbúnaðarsérfræðingur hjá okkur ertu hluti af öflugu teymi sérfræðinga á Upplýsingatæknisviði OR - samstæðunnar