Hugbúnaðarsérfræðingur í vefteymi

Sjóvá 2. May 2022 Fullt starf

Við leit­um að já­kvæð­um og hug­mynda­rík­um hug­bún­að­ar­sér­fræð­ingi í vef­teym­ið okk­ar. Í boði er áhuga­vert starf sem fel­ur í sér þátt­töku í fjöl­breytt­um verk­efn­um á sviði hug­bún­að­ar­þró­un­ar og rekst­urs upp­lýs­inga­kerfa.

Starf­ið fel­ur í sér:

  • hönnun, greiningu, þróun og viðhald á API og veflausnum
  • samþættingu kerfa með hliðsjón af API
  • nýtingu gagna í lausnum
  • þátttöku í þverfaglegri verkefnavinnu á sviði stafrænnar þróunar

Við leit­um að ein­stak­lingi með:

  • háskólamenntun á sviði tölvunarfræði eða sambærilega menntun
  • að lágmarki 2ja ára reynslu af forritun, reynsla af arkitektúr og greiningarvinnu er kostur.
  • reynslu af þróun í .Net og .NET Core, þekking og reynsla af Azure skýjalausnum er kostur
  • framúrskarandi samskiptahæfileika og hæfni til að vinna í teymum

Nán­ari upp­lýs­ing­ar veita Ingi­björn Pét­urs­son, for­stöðu­mað­ur upp­lýs­inga­tækni­sviðs, ingi­bjorn.pet­urs­son@sjova.is og Erla Björk Gísla­dótt­ir, mannauðs­sér­fræð­ing­ur erla.gisladott­ir@sjova.is.

Um­sókn­ar­frest­ur er til og með 8. maí nk.

Hjá upp­lýs­inga­tækni­deild Sjóvá starfar öfl­ug­ur og sam­hent­ur hóp­ur að fjöl­breytt­um upp­lýs­inga­tækni­verk­efn­um og hug­bún­að­ar­þró­un tengdri sölu trygg­inga, af­greiðslu tjóna o.fl. Það eru spenn­andi tím­ar í trygg­ing­um þar sem upp­lýs­inga­tækni gegn­ir lyk­il­hlut­verki og því mik­il þró­un­ar­vinna framund­an. Upp­lýs­inga­tækni­deild fylg­ir Agile að­ferða­fræð­inni og beit­ir Scr­um eða Kan­b­an að­ferð­um við gerð hug­bún­að­ar.

Vinnu­staða­menn­ing okk­ar hjá Sjóvá er já­kvæð og ár­ang­urs­drif­in og legg­ur starfs­fólk sig fram um að veita við­skipta­vin­um af­burða­þjón­ustu. Við erum efst trygg­inga­fé­laga í Ís­lensku ánægju­vog­inni og kann­an­ir sýna að starfs­ánægja hjá okk­ur er með því mesta sem ger­ist hér­lend­is.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Sótt er um starfið á umsóknarsíðu