Hugbúnaðarsérfræðingur í samstæðulausnum

Í Hugbúnaðarlausnum Íslandsbanka starfar samhentur hópur sérfræðinga eftir viðurkenndum aðferðafræðum við hugbúnaðarþróun. Við myndum sterka liðsheild sem tekst á við krefjandi áskoranir og vinnum þétt með hagsmunaaðilum okkar innan sem utan bankans. Leitað er að forritara sem hefur ástríðu fyrir úrlausn flókinna verkefna og uppbyggingu úthugsaðra lausna.
Helstu verkefni: • Þátttaka í þróunarteymum og samvinna við viðskiptaeiningar • Forritun á nýju notendaviðmóti viðskiptavina • Fylgja gæðastöðlum og gæðamarkmiðum • Önnur verkefni eftir samkomulagi
Hæfniskröfur: • Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði • Reynsla af þróun í JavaScript (Angular er kostur), HTML og CSS • Reynsla af notkun GIT • Reynsla af .NET Core, C#, Sass og/eða LESS er kostur • Lipurð í mannlegum samskiptum • Frumkvæði og drifkraftur • Fagleg vinnubrögð
Nánari upplýsingar um starfið á veitir Gauti Guðmundsson, forstöðumaður Samstæðulausna, 825-4733, gauti.gudmundsson@islandsbanki.is og Sigrún Ólafsdóttir á mannauðssviði, 844-4172 , sigrun.olafs@islandsbanki.is
Hjá Íslandsbanka starfa um 800 manns með ástríðu fyrir árangri. Við vinnum saman að lausnum fyrir viðskiptavini með fagmennsku að leiðarljósi. Starfsfólk Íslandsbanka leggur sig alltaf fram við að veita bestu bankaþjónustuna.
Íslandsbanki hefur staðist jafnlaunavottun og hlotið Jafnlaunamerki Velferðaráðuneytis
Sækja um starf
Umsóknir óskast fylltar út á islandsbanki.is og sendar ásamt ferilskrá. Umsóknarfrestur er til og með 6. október 2020.