Hugbúnaðarsérfræðingur í dreifileiðum

Íslandsbanka 22. Oct 2021 Fullt starf

Í Hugbúnaðarlausnum Íslandsbanka starfar samhentur hópur sérfræðinga eftir viðurkenndum aðferðafræðum við hugbúnaðarþróun. Við myndum sterka liðsheild sem tekst á við krefjandi áskoranir og vinnum þétt með hagsmunaaðilum okkar innan sem utan bankans.

Leitað er að forritara sem hefur ástríðu fyrir að smíða notendavæna og aðgengilega framenda. Umsækjandi þarf að geta tekist á við nýjar áskoranir og að vinna í framsæknu og spennandi umhverfi.

Helstu verkefni:

  • Þátttaka í þróunarteymum og samvinna við viðskiptaeiningar
  • Forritun á nýju notendaviðmóti viðskiptavina
  • Fylgja gæðastöðlum og gæðamarkmiðum
  • Önnur verkefni eftir samkomulagi

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði
  • Reynsla af þróun í JavaScript, Angular og/eða React, HTML og CSS
  • Reynsla af notkun GIT
  • Reynsla af Bootstrap, Sass og/eða LESS er kostur
  • Lipurð í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og drifkraftur
  • Fagleg vinnubrögð

Nánari upplýsingar um starfið á veitir Jóhannes Örn Erlingsson, forstöðumaður Dreifileiða, 777-5000, johannes.orn.erlingsson@islandsbanki.is og Guðlaugur Örn Hauksson á Mannauðssviði, 844-2714 , gudlaugurh@islandsbanki.is

Hjá Íslandsbanka starfa um 750 manns með ástríðu fyrir árangri. Við vinnum saman að lausnum fyrir viðskiptavini með fagmennsku að leiðarljósi. Íslandsbanki hefur staðist jafnlaunavottun og hlotið Jafnlaunamerki Velferðaráðuneytis.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Sækið um hér: https://jobs.50skills.com/isb/is/10562