Hugbúnaðarsérfræðingur – Afgreiðslulausnir

Advania 21. Aug 2018 Fullt starf

Vilt þú hjálpa okkur að þróa afgreiðslulausnir framtíðarinnar?

Advania leitar að öflugum hugbúnaðarsérfræðingi til að vinna að þróun og innleiðingu á afgreiðslulausnum fyrir viðskiptavini okkar. Advania er leiðandi á íslenskum markaði á sviði sjálfsafgreiðslulausna með mörg spennandi verkefni framundan.

Við leitum að einstaklingi með góða þekkingu á bæði hugbúnaðarþróun og þeim ferlum sem mikilvægir eru í smásölurekstri. Viðkomandi verður hluti af þróunarteymi sem ber ábyrgð á þróun sjálfsafgreiðslulausna og þarf að geta tekið virkan þátt í vöruþróun og átt góð samskipti við viðskiptavini.

Hæfniskröfur:

  • Góð þekking og reynsla af þróun í .NET og C#

  • Þekking á þróun afgreiðslu- eða viðskiptalausna er mikill kostur

  • Reynsla úr smásöluumhverfi kostur

  • Menntun sem nýtist í starfi

  • Sjálfstæð og góð vinnubrögð

  • Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum

Tekið á móti umsóknum til 31.08.2018

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Daði Snær Skúlason, deildastjóri afgreiðslulausna, dadis@advania.is / 440 9000.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Hægt er að sækja um starfið með því að skrá sig inn á http://advania.is/atvinna og velja starfið "Hugbúnaðarsérfræðingur - Afgreiðslulausnir". Ef spurningar vakna má senda póst á radningar@advania.is