Hugbúnaðarsérfræðingur

Íslandsbanka 19. Jan 2024 Fullt starf

Hugbúnaðarlausnir Íslandsbanka leita að öflugum og metnaðarfullum hugbúnaðarsérfræðingi í fjölbreytt starf í spennandi starfsumhverfi.

Við myndum sterka liðsheild sem tekst á við krefjandi áskoranir og vinnum þétt með viðskiptaeiningum, stoðeiningum og öðrum hagsmunaaðilum, með það markmið að búa til framúrskarandi lausnir fyrir viðskiptavini og starfsmenn bankans.

Teymin okkar vinna eftir agile aðferðafræðum í notendamiðaðri vöruþróun með það að leiðarljósi að skila raunverulegu virði snemma, hratt og oft. Við bjóðum uppá nútímalegt tækniumhverfi þar sem við leggjum áherslu á gæði lausna og sjálfvirknivæðingu ferla.

Starfið er í vöruteymi Samstæðulausna. Hlutverk teymissins er sala og þjónusta við viðskiptavini Íslandsbanka, sjálfvirknivæðing ferla fyrir viðskiptavini og starfsmenn, þekkja viðskiptavini og geta boðið upp á réttar vörur.

Helstu verkefni

  • Samþætting gagna við CRM, Adobe og Genesys.
  • Greining, hönnun, nýþróun og bestun hugbúnaðar.
  • Sjálfvirknivæðing hugbúnaðarferla, afhendinga, prófana og reksturs.
  • Önnur verkefni eftir samkomulagi.

Hæfniskröfur

  • Góð enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli.
  • Marktæk reynsla og þekking af hugbúnaðarþróun.
  • Geta til að læra á nýja tækni og forritunarmál, úrlausn vandamála og greiningarhæfni.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum, frumkvæði og drifkraftur.
  • Reynsla af GIT, MS SQL, .NET Core/C#.
  • Þekking og reynsla af Docker, Angular eða React og OAuth er kostur.

Frekari upplýsingar:

Frekari upplýsingar veita Gyða Einarsdóttir forstöðumaður, gyda.einarsdottir@islandsbanki.is og Guðlaugur Örn Hauksson ráðningarstjóri, gudlaugur.orn.hauksson@islandsbanki.is.

Hjá Íslandsbanka starfa um 700 manns sem hafa ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini með fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á að skapa virði til framtíðar með traustum rekstri og framúrskarandi þjónustu.

Hjá Íslandsbanka starfa um 750 manns sem hafa ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini með fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á að skapa virði til framtíðar með traustum rekstri og framúrskarandi þjónustu


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Frekari upplýsingar veita Gyða Einarsdóttir forstöðumaður, gyda.einarsdottir@islandsbanki.is og Guðlaugur Örn Hauksson ráðningarstjóri, gudlaugur.orn.hauksson@islandsbanki.is.