Hugbúnaðarsérfræðingur

Íslandsbanka 19. Dec 2023 Fullt starf

Hugbúnaðarlausnir Íslandsbanka leita að öflugum og metnaðarfullum hugbúnaðarsérfræðingi í fjölbreytt starf í spennandi starfsumhverfi. 

Við myndum sterka liðsheild sem tekst á við krefjandi áskoranir og vinnum þétt með viðskiptaeiningum, stoðeiningum og öðrum hagsmunaaðilum, með það markmið að búa til framúrskarandi lausnir fyrir viðskiptavini og starfsmenn bankans.

Teymin okkar vinna eftir agile aðferðafræðum í notendamiðaðri vöruþróun með það að leiðarljósi að skila raunverulegu virði snemma, hratt og oft. Við bjóðum uppá nútímalegt tækniumhverfi þar sem við leggjum áherslu á gæði lausna og sjálfvirknivæðingu ferla.

Starfið er í Vöruteymi Fjármála. Hlutverk Vöruteymisins er að vinna í nánu samstarfi við Fjármálasvið bankans og önnur Vöruteymi bankans við að þróa stafrænar lausnir sem anna kröfum Fjármálasviðs. Megin verkefni þar eru að draga saman fjármála gögn bankans til úrvinnslu, áætlana og greiningar í fjárhagskerfi bankans og öðrum greiningar tólum. Teymið er einnig nýverið farið að styðja við innheimtuferla bankans.

Helstu verkefni

  • Þátttaka í vöruþróun lausna fyrir reikningshalds, fjármálagreiningar og innheimtu ferla.
  • Greining, hönnun, nýþróun og bestun hugbúnaðar.
  • Sjálfvirknivæðing hugbúnaðarferla, afhendinga, prófana og reksturs.
  • Önnur verkefni eftir samkomulagi.

Hæfniskröfur

  • Góð enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli.
  • Marktæk reynsla og þekking af hugbúnaðarþróun.
  • Geta til að læra á nýja tækni og forritunarmál, úrlausn vandamála og greiningarhæfni.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum, frumkvæði og drifkraftur.
  • Reynsla af C# og .NET og töflugagnagrunnum (e. relational databases).
  • Þekking og reynsla af GIT, MS SQL, Oracle, Docker eða Angular er kostur.

Frekari upplýsingar

Frekari upplýsingar veita Hans Róbert Hlynsson, forstöðumaður, hans.robert.hlynsson@islandsbanki.is og Guðlaugur Örn Hauksson, ráðningarstjóri, gudlaugur.orn.hauksson@islandsbanki.is

Hjá Íslandsbanka starfa um 700 manns sem hafa ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini með fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á að skapa virði til framtíðar með traustum rekstri og framúrskarandi þjónustu


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Frekari upplýsingar veita Hans Róbert Hlynsson, forstöðumaður, hans.robert.hlynsson@islandsbanki.is og Guðlaugur Örn Hauksson, ráðningarstjóri, gudlaugur.orn.hauksson@islandsbanki.is