Hugbúnaðarsérfræðingur

Íslandsbanka 21. Jul 2023 Fullt starf

Hugbúnaðarlausnir Íslandsbanka leita að öflugum og metnaðarfullum hugbúnaðarsérfræðingi í fjölbreytt starf í spennandi starfsumhverfi. Við myndum sterka liðsheild sem tekst á við krefjandi áskoranir og vinnum þétt með viðskiptaeiningum og öðrum hagsmunaaðilum, með það markmið að búa til framúrskarandi lausnir fyrir viðskiptavini bankans.

Teymin okkar vinna skv. Agile í notendamiðaðri vöruþróun með það að leiðarljósi að skila raunverulegu virði snemma, hratt og oft. Við hvetjum starfsfólk til að verða virkir þátttakendur í þróunarferlinu og leiða þannig bankann í stafrænni þróun. Við bjóðum uppá nútímalegt tækniumhverfi þar sem við leggjum áherslu á gæði lausna og sjálfvirknivæðingu ferla.

Helstu verkefni

  • Þátttaka í vöruþróun lausna fyrir stafræna sölu og þjónustu ásamt nauðsynlegum innviðum, t.a.m. auðkenningar, aðgangsstýringar, viðskiptamannastofn, vörustofn, rafrænar undirritanir, efnisstýringu, CRM osfrv.
  • Greining, hönnun, nýþróun og bestun hugbúnaðar.
  • Sjálfvirknivæðing hugbúnaðarferla, afhendinga, prófana og reksturs.
  • Önnur verkefni eftir samkomulagi.

Hæfniskröfur

  • Góð enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli.
  • Marktæk reynsla og þekking af hugbúnaðarþróun.
  • Geta til að læra á nýja tækni og forritunarmál, úrlausn vandamála og greiningarhæfni.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum, frumkvæði og drifkraftur.
  • Þekking og reynsla af GIT, MS SQL, .NET Core/C#, Docker, Angular eða React og OAuth er kostur.

Frekari upplýsingar:

Frekari upplýsingar veita Gyða Einarsdóttir forstöðumaður, gyda.einarsdottir@islandsbanki.is og Guðlaugur Örn Hauksson ráðningarstjóri, gudlaugur.orn.hauksson@islandsbanki.is. 

Hjá Íslandsbanka starfa um 700 manns með ástríðu fyrir árangri og vinnum við öll að lausnum fyrir viðskiptavini með fagmennsku að leiðarljósi og að því að veita bestu bankaþjónustuna.

Við erum stolt af því að hafa fengið nokkrum sinnum faggilta vottun á jafnlaunastaðalinn ÍST85:2012. Vottunin staðfestir að unnið er markvisst gegn kynbundnum launamun og þannig stuðlað að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Þessi vottun er eðlilegt framhald af þeirri vinnu sem unnin hefur verið innan bankans undanfarin ár en við fengum Hvatningarverðlaun jafnréttismála 2016 og Gullmerki PwC 2015 og Jafnvægisvog FKA nokkur ár í röð.

Jafnframt leggur Íslandsbanki mikla áherslu á sjálfbærnimál og styður við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Gyða Einarsdóttir, gyda.einarsdottir@islandsbanki.is and Guðlaugur Örn Hauksson, gudlaugurh@islandsbanki.is provide futher information regarding this role.