Hugbúnaðarsérfræðingur

Íslandsbanka 4. Jan 2023 Fullt starf

Hugbúnaðarsérfræðingur

Hugbúnaðarlausnir Íslandsbanka leita að öflugu og metnaðarfullu starfsfólki í fjölbreytt hugbúnaðarstörf í spennandi starfsumhverfi. Við myndum sterka liðsheild sem tekst á við krefjandi áskoranir og vinnum þétt með viðskiptaeiningum og öðrum hagsmunaaðilum, jafnt innan sem utan bankans. Teymin okkar vinna skv. Agile í notendamiðaðri vöruþróun með það að leiðarljósi að skila raunverulegu virði snemma, hratt og oft. Við hvetjum starfsfólk til að verða virkir þátttakendur í þróunarferlinu og leiða þannig bankann í stafrænni þróun.

Við bjóðum upp á nútímalegt tækniumhverfi þar sem við leggjum áherslu á gæði lausna og sjálfvirknivæðingu ferla.

Helstu verkefni:

  • Greining, hönnun, nýþróun og bestun hugbúnaðar
  • Samþætting og rekstur aðkeyptra lausna
  • Þátttaka í vöruþróun lausna fyrir stafræna þjónustu ásamt nauðsynlegri innviða uppbyggingu
  • Sjálfvirknivæðing hugbúnaðarferla, afhendinga, prófana og reksturs
  • Önnur verkefni vöruteyma

Hæfniskröfur:

  • Marktæk reynsla og þekking á hugbúnaðarþróun.
  • Geta til að læra á nýja tækni og forritunarmál, úrlausn vandamála og greiningarhæfni.
  • Þekking og reynsla af helstu hugbúnaðartólum (t.d. git, MSSQL, .NET Core/C#, Docker og OAuth) er kostur.
  • Góð enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum, frumkvæði og drifkraftur.

Nánari upplýsingar um starfið veita Árni Geir Valgeirsson forstöðumaður á Upplýsingatæknisviði, (arni.geir.valgeirsson@islandsbanki.is) og Guðlaugur Örn Hauksson ráðningastjóri, s. 844-2714 (gudlaugurh@islandsbanki.is).

Hjá Íslandsbanka starfa um 700 manns með ástríðu fyrir árangri og vinnum við öll að lausnum fyrir viðskiptavini með fagmennsku að leiðarljósi og að því að veita bestu bankaþjónustuna.

Við erum stolt af því að hafa fengið nokkrum sinnum faggilta vottun á jafnlaunastaðalinn ÍST85:2012. Vottunin staðfestir að unnið er markvisst gegn kynbundnum launamun og þannig stuðlað að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Þessi vottun er eðlilegt framhald af þeirri vinnu sem unnin hefur verið innan bankans undanfarin ár en við fengum Hvatningarverðlaun jafnréttismála 2016 og Gullmerki PwC 2015 og Jafnvægisvog FKA nokkur ár í röð.

Jafnframt leggur Íslandsbanki jafnframt mikla áherslu á sjálfbærnimál og styður við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Nánari upplýsingar um starfið veita Árni Geir Valgeirsson forstöðumaður á Upplýsingatæknisviði, (arni.geir.valgeirsson@islandsbanki.is) og Guðlaugur Örn Hauksson ráðningastjóri, s. 844-2714 (gudlaugurh@islandsbanki.is).