Hugbúnaðarsérfræðingur

Rannís 15. Aug 2022 Fullt starf

Rannís leitar að flinkum forritara til að bætast í hugbúnaðarhópinn. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt teymi sem vantar hressan „fullstack forritara” með mikinn áhuga á vefforritun og greiningarvinnu. Starfið felst í hönnun, hugbúnaðargerð og umsjón með kerfum Rannís.

Rannís er skemmtilegur vinnustaður með mikið félagslíf, frábæran starfsanda og nóg af kaffi! Starfið felst í hönnun, hugbúnaðargerð og umsjón með umsókna-, umsýslu- og upplýsingakerfum Rannís. Bæði er verið að viðhalda og uppfæra núverandi kerfi og einnig þróa og smíða nýjar lausnir og viðbætur til að einfalda og straumlínulaga ferli.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun á sviði hugbúnaðarfræða eða annað sambærilegt nám
  • Þekking og reynsla á PHP, SQL, JavaScript og Git er æskileg
  • Reynsla af hugbúnaðargerð, Agile og Scrum er æskileg
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt góðri samskiptafærni
  • Metnaður til að ná árangri í starfi með því að sýna vönduð vinnubrögð, frumkvæði og veita góða þjónustu

Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsóknarfrestur er til og með 22. ágúst 2022.

Sækja skal um starfið á heimasíðu Rannís, á www.rannis.is/starfsemi/laus-storf/. Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf og prófskírteini. Umsækjendum er bent á að kynna sér starfsemi Rannís á vefsíðu stofnunarinnar.

Upplýsingar um starfið veitir Berglind Fanndal Káradóttir, sviðsstjóri greiningar- og hugbúnaðarsviðs, í síma 515 5816 eða í netfanginu berglind.fanndal@rannis.is.