Hugbúnaðarsérfræðingur

Vörður tryggingar 27. Apr 2021 Fullt starf

Vörður leitar að jákvæðum og lausnamiðuðum hugbúnaðarsérfræðingi í þróunarteymi stafrænna lausna félagsins. Markmið teymisins er að þróa nútímalegar hugbúnaðarlausnir í þeim tilgangi að hámarka notendaupplifun viðskiptavina og sjálfvirknivæða innri ferla félagsins.

Hlutverk og starfssvið viðkomandi innan teymisins mun felast í því að sinna viðhaldi og nýsmíði bakendakerfa á borð við Azure Serverless þjónustur, .Net vefþjónustur og þróun notendaviðmóta fyrir vefkerfi Varðar. Mikil áhersla verður lögð á virka þátttöku í þróunarteyminu þar sem viðkomandi mun taka þátt í hugmyndavinnu og hönnun og eiga samvinnu við önnur teymi og deildar innan Varðar.

Fyrirmyndarumsækjandi er fljótur að læra og aðlagast nýjum aðstæðum og er jafnframt forvitinn og áhugasamur um að prófa nýja hluti. Viðkomandi vinnur vel í teymi, hefur mikinn drifkraft og iðkar sjálfstæð og öguð vinnubrögð. Viðkomandi er óhræddur við að taka við og gefa uppbyggilega gagnrýni og hefur þekkingu á eða vilja til að læra hluti á borð við Next.js/Typescript, .NET/C#, Azure, Git, Scrum, Jira og DevOps.

Við bjóðum uppá góðan starfsanda, gott félagslíf og metnaðarfullt umhverfi þar sem fólk er hvatt til að eiga opin samskipti og taka virkan þátt í sinni eigin starfsþróun.

Vörður er Fyrirtæki ársins 2019 og 2020 hjá VR og hlaut einnig hvatningarverðlaun fyrir framúrskarandi samfélagsábyrgð 2020 frá Creditinfo og Festu. Vörður er jafnlaunavottað fyrirtæki.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Tekið er á móti umsóknum á heimasíðu félagsins www.vordur.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sverrir Scheving Thorsteinsson forstöðumaður í netfanginu sverrir@vordur.is

Umsóknafrestur er til 09.05.2021