Hugbúnaðarsérfræðingur

Borgun 29. Nov 2019 Fullt starf

Borgun er framsækið fjármálafyrirtæki sem er leiðandi í þróun og hagnýtingu lausna á sviði rafrænnar greiðslumiðlunar og fjártækni. Við leitum að metnaðarfullum hugbúnaðarsérfræðingi sem mun gegna lykilhlutverki í þróun hugbúnaðarlausna fyrirtækisins. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn til að axla ábyrgð og sýna frumkvæði í starfi til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni.

Helstu verkefni:

  • Nýsköpun, þróun og innleiðing hugbúnaðarlausna
  • Samþætting og umbætur á lausnum í rekstri
  • Bestun fyrirspurna og hámörkun afkasta
  • Samskipti við viðskiptaeiningar Borgunar og samstarfsaðila
  • Unnið er með .NET, .NET Core, SQL Server, REST og SOAP þjónustur og margt fleira

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, verkfræði eða sambærileg
  • Mjög góð þekking og reynsla af forritun í .NET / .NET Core á öllum lögum (e. full stack)
  • Reynsla af þróun og rekstri gagnagrunna á SQL Server
  • Reynsla af notkun TFS og GIT
  • Reynsla af notkun IIS
  • Þekking á eftirlitskerfum er kostur
  • Ástríða fyrir hugbúnaðargerð
  • Frumkvæði, drifkraftur, fagleg, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
  • Geta til þess að starfa sjálfstætt og í hóp
  • Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurjón Þráinsson, þróunarstjóri, í síma 859-7969. Umsóknum skal skila á vef Borgunar, https://www.borgun.is. Umsóknafrestur er til og með 8. desember.