Hugbúnaðarsérfræðingur

MyTimePlan 13. Apr 2019 Fullt starf

MyTimePlan leitar að öflugum hugbúnaðarsérfræðingi í innleiðingarteymi.

Þú yrðir hluti af hæfileikaríku hugbúnaðarteymi og fengir tækifæri til að vinna náið með stjórnendum hjá mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins.

Sem hugbúnaðarsérfræðingur ertu í lykilhlutverki við að laga/stilla MyTimePlan að ólíkum þörfum viðskiptavina og hámarka hagnað þeirra af notkun kerfisins.

Til að ná árangri í starfinu þarftu að ná góðum tökum á virkni MyTimePlan kerfisins, hafa framúrskarandi rökhugsun, góða samskiptahæfileika, vera skipulagður og drífandi í að koma hlutum í framkvæmd og tryggja ánægju viðskiptavina.

Menntun og reynsla:

• Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, verkfræði eða öðru er nýtist í starfi skilyrði

• Reynsla af innleiðingu á umfangsmiklum, flóknum og sveigjanlegum hugbúnaði kostur

• Reynsla og þekking á vakta- & viðverukerfum kostur

• Reynsla og þekking á launakerfum og launavinnslu kostur

• Starfið felur ekki í sér eiginlega forritun

MyTimePlan er leiðandi kerfi í Skýinu fyrir mannauðsstjórnun sem auðveldar stjórnendum stýringu mikilvægustu auðlindar fyrirtækisins, þ.e.; mannauðnum og stuðlar að auknum lífsgæðum og framleiðni. Í dag nota rúmlega 30.000 starfsmenn kerfið hjá yfir 130 fyrirtækjum og stofnunum.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Ef þú telur þig réttu manneskjuna í starfið sendu okkur þá endilega umsókn og ferilskrá á netfangið job@mytimeplan.com fyrir 26. apríl. Fullum trúnaði er heitið.