Hugbúnaðarsérfræðingur

TM 9. Apr 2019 Fullt starf

FRAMTÍÐIN ER NÚNA

TM er framsækið fyrirtæki þegar kemur að stafrænni þjónustu og leitar nú að lausnamiðuðum framendaforritara sem hefur unun af því að búa til fallegar stafrænar lausnir í náinni samvinnu við hönnuði og vörustjóra. Helstu verkefni snúa að TM appinu og þróun þess ásamt lausnum tengdum vefsölu.

Hæfniskröfur

Leitað er að einstaklingi sem hefur gott auga fyrir hönnun, hefur reynslu af því að vinna í nútíma framendalausnum og skilur hvernig allur tæknistaflinn hefur áhrif á notendaupplifun. Viðkomandi þarf að hafa gaman af því að læra nýja hluti og miðla sinni þekkingu til annarra, ásamt eftirfarandi:

  • Reynsla af React eða React Native er kostur

  • Reynsla af að vinna í teymi

  • Vera viljug(ur) til að eiga opin og heiðarleg samskipti

  • Vera opin(n) fyrir þeim vinnuaðferðum sem teymið notar

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Teymið

Teymið sem um ræðir samanstendur af starfsfólki TM og starfsfólki frá Kolibri þar sem mismunandi hlutverk (forritarar, hönnuður, vörustjóri og teymisþjálfi) vinna náið saman. Forvitni, skapandi hugsun, hlustun og opin samskipti eru mikils metnir eiginleikar í teyminu.

Við trúum því að einstaklingurinn skipti meira máli en kunnátta og teymið er byggt upp af ólíkum einstaklingum með styrkleika á mismunandi sviðum. Saman hefur teymið mikil áhrif á lausnirnar sem við smíðum fyrir viðskiptavini TM. Við erum opin fyrir nýjungum og sýnum samkennd og vilja til að læra í umræðum innan teymisins.

Nánari upplýsingar veitir Óskar Örn Ingvarsson forstöðumaður Hugbúnaðargerðar TM (oskar@tm.is)

Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl nk.

Farið er með umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Sótt er um gegnum umsóknarvef TM

https://umsokn.tm.is